Litli Bergþór - 07.11.1983, Síða 5

Litli Bergþór - 07.11.1983, Síða 5
®«J0ftN ©.«JéJíSS0Jl formanns- spjall Agætu sveitungar. Þá er nú kominn vetur haustönnum að mestu lokið og vonandi að allir séu hunir að búa sig sem best undir veturinn. Hjá Ungmennafelaginu er vetrastarfið að fara x full- an gang þessa dagana og verður það með líkum hætti og undanfa.rin ár. íþróttaæfingar eru nú hafnar og eru á þriðjudags- kvöldum æfin;r:ar fyrir þá eldri en á fimmtudagskvöldum fyrir yngra fólkið. Iiópur ungs fólks æfir nú reglu- lega sund og verða æfingar á mánudögum slrstaklega fyrir þennan hóp. Á f jmmtudagskvöldum verður "Opið hús" að vahda og bókasafnið verður einnig opið á sama tíma. Vonandi verða jafn margir, og undanfarin ár, til að notfæra sér þetta fyrirkomulag til a.ð hressa upp á líkama og saL. - Rétt er að brýna það fyrir umsjónarmönnum "Ó^ins húss" að ganga vel frá öllu og þrífa drykkjar- ílatin samviskusamlega. Eirmig er rétt að árétta það að "Opið hús" er ætlað eldra fólki þ.e.a. s. öllum þeim sem eru yfir þeim aldri sem íþróttaæfingar þess kvölds segja til um. Eru umsjónamenn því beðnir um að sjá til þess að smákrakkar séu ekki að drekka kaffi og bryðja sykurmola í tíma og ótíma. Leiklistarnámskeið stendur nú yfir ( trúlega búið þegar L.B. kemur út ) og er það mjög vel sótt eða um 18 manns. Leiðbeinandi er Pétur Éinarsson leikari og fyrrverandi skólastjóri Leiklistarskóla ríkisins. Reynt verður að hafa fleiri námskeið í vetur og í því sambandi haf^.* dansnámskeið og félagsmálanémskeið verið nefnd. Félagsvist, árshátíð, skákkeppni og miðsvetrarvakan verða vonandi á sínum stað. Að lokum óska ég öllum góðs vetrar.

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.