Litli Bergþór - 01.06.1988, Blaðsíða 3
RITSTJORNARSPJALL
Fyrir skömmu var haldinn fjölmennur ritstjórnarfundur
þar sem mætti nýja fólkið í útgáfunefnd ásamt fráfarandi
nefnd. Þar fór fram athyglisverð umræða um stöðu og
ffamtíð Litla-Begga. Þessir gömlu í nefndinni voru ein-
dregið á þeirri skoðun að blaðið okkar væri best allra
blaða. Og þar sem við vorum svona ánægð með okkur
þá gat nýja fólkið varla komist að með nein mótmæli.
Það sést best á þessu að þörf er á endurnýjun svona af
og til í ritnefnd, undirrituð hefur t.d. þrjóskast við í heil
7 ár. Á fýrrnefndum fundi var þó aðallega rætt um breyt-
ingar á vinnslu blaðsins. Eins og kom ffarn í síðasta blaði
og sást, varð þá heilmikil breyting á, og finnst mér að
muni þar mest um gæði myndanna, því blaðið var prent-
að í prentsmiðju en hafði áður verið offset fjölritað. En
vinnsla síðasta blaðs tók allt of langan tíma og því stend-
ur Litli-Bergþór enn einu sinni á tímamótum. Nú er það
tölvuöldin sem heldur innreið sína hér heima í héraði,
enda er tölvusérffæðingur Reykholtsskóla kominn í út-
gáfunefnd. Einnig er ný í nefndinni Drífa Kristjánsdóttir
(nú orðin gjaldkeri LB) svo og varamaður Anna Sigríður
Snædal, en hún hefúr reyndar aðstoðað við blaðið í vet-
ur sem útlitshönnuður og teiknari. Jón Þ. Þórólfsson og
undirrituð hætta að sinni í útgáfúnefttd. í þetta skipti tók
Guðríður Erla sér ffí ffá vélritun en Anna Björg Þorláks-
dóttir og Stefán Böðvarsson tóku að sér að vélrita text-
ann og þá inn á tölvu. Færum við þeim okkar bestu
þakkir. Síðan verður blaðið sett upp hjá Nýju útliti. Hugs-
anlega verður tölvuvinnslan enn meiri hér heima seinna
meir, jafnvel öll uppsetning. í síðasta tölublaði lofúðum
við því að þetta blað yrði helgað afmælinu en við svikj-
um það og frestum afmælisblaðinu til haustsins. Mig
langar að lokum að nota tækifærið og þakka öllum sem
ég hef starfað með í útgáfúnefnd fýrir skemmtilegt sam-
starf um leið og ég óska nýju fólki í nefhdinni góðrar
skemmtunar. Ég vona að Litli-Bergþór haldi áfram að
dafna vel, þroskast og breytast, og ég óska honum
langrar ævi. Læt ég þessu kveðjuávarpi hér með lokið.
Sigríður J. Sigurfinnsdóttir
Málgagn Ungmennafélags
Biskupstungna
9. árg. 2. tbl. júní 1988
Ábyrgðarmaður:
Tfeikningar að hluta:
Efnisöflun og rit-
skoðun:
Myndir:
Vélritun:
Útlit og umbrot:
Prentun:
Forsíðumynd:
Sveinn A. Sæland
Anna Sigríður Þ. Snædal
Jón Þór Þórólfsson
Sigríður J. Sigurfinnsdóttir
Arnór Karlsson
Þorfinnur Þórarinsson
Sveinn A. Sæland
Gunnar Sverrisson
Stefán Böðvarsson og Anna
Björg Þorláksdóttir
Nýtt útlit, Selfossi
Prentsmiðja Suðurlands
Við vígslu nýju borholunnar
við Efri-Reyki
Efnisyfirlit:
Ritstjórnarspjall
Afmæli Umf. Biskupstungna
Aðalfundur Umf. Bisk.
Sveitarstjórnarmál
Afmæli Reykholtsskóla
Atvinnumál
Barnaefni
Örnefni
Fréttir
Félagsmál
Vísnaþáttur
íþróttir
Af ,,Stóra Bergþóri"