Litli Bergþór - 01.06.1988, Side 4
4
Ungmennafélag
Biskupstungna áttrætt
Á sumardaginn tyrsta árið 1908 var Ungmennafélag
Biskupstungna stofnað. Starf þess heíur verið samfellt
síðan og oft á tíðum margþætt menningar-, líknar- og
æskulýðsstarf. Fýrstu áratugina var mikil áhersla lögð á
fundarstarf, skemmtanir og ýmislegt annað. Sama má
segja um íþróttir, sem á síðari árum hefur orðið stöðugt
veigameiri þáttur í félagsstarfinu. í tilefhi af áttræðisaf-
mælinu er ýmislegt gert til hátíðabrigða. Þegar hefur ver-
ið sett á svið leikrit. Það er gamanleikurinn, ,Ó þú..“ sem
Edda Guðmundsdóttir leikstýrði. í sumar mun verða tek-
inn í notkun íþróttavöllur, sem félagið hefúr útbúið í
Reykholti í samstarfi við Biskupstungnahrepp og ríkis-
sjóð. 3. tölublað 9. árgangs Litla-Bergþórs verður helgað
sögu, starfi og framtíð félagsins. Afmælishátið var í Ara-
tungu á sumardaginn fýrsta, 21. apríl sl. Formaður af-
mælisnefndar, Amór Karlsson, settihátíðinaogvarjafn-
framt veislustjóri. Rifjuð var upp saga félagsins á fyrstu
árum þess og Skálholtskórinn söng undir stjórn Ólafs
Sigurjónssonar í Forsæti í Villingaholtshreppi. Félaginu
bárust margar góðar gjafir á þessum tímamótum, frá
hreppsnefnd, félögum innansveitar, stjórn HSK og ftá
ungmennafélögum úr nágrannasveitum. Formaður fé-
lagsins, Jens Pétur Jóhannsson lýsti kjöri eins heiðursfé-
laga, Eiríks Sæland á Espiflöt. Um kvöldið var síðan
haldinn , ,dansleikur“ fýrir yngstu Túngnamennina, 1
árs til 12 ára. Börnin skemmtu sér vel í aftnælinu, döns-
uðu og fóm í leiki.
A.K. og S.J.S.
Eiríkur Sæland, nýkjörinn heiðursfélagi í ræðustól.
Það var kátt um kvöldið hjá yngri kynslóðinni og veitti
ekki af röggsarnri stjórn.
Afmælisnefnd les þætti úr sögu Ungmennafélagsins.