Litli Bergþór - 01.06.1988, Síða 8

Litli Bergþór - 01.06.1988, Síða 8
Aftnæli Reykholtsskóla Það hefur væntanlega ekki farið ffam hjá neinum hér í sveit að Reykholtsskoli er 60 ára um þessar mundir, en þar hófst kennsla í febrúar 1928. Það er búið að halda upp á afmælið á þrennan hátt: 1) Vinnuvika í skólanum og var verkefnið, , ,Skóli í 60 ár“, sem lauk með sýningu í skólanum á því sem gert var. Þar mátti sjá ýmislegt fróðlegt sem nemendur höfðu unnið s.s. likön af skólalóðinni, með húsum ffá þremur mismunandi tímum. Sveitungarnir fjölmenntu á sýning- una og voru allir ánægðir með árangurinn. 2) Útgáfa afmælisrits sem er tæpar 50 síður að stærð. Þar er ýmis ffóðleikur um byggingu og einkum um fyrstu starfsár skólans. Nemendatal fyrstu 25 árin ásamt kenn- aratali, er einnig með ýmsu fleiru. Þetta rit fæst keypt í verslunum hér í sveitinni og hjá undirrituðum. 3) Heimsókn gamalla nemenda 7. maí. Þá komu í heimsókn í skólann nemendur sem tóku próf í skólanum fyrsta vorið sem hann starfaði. Einnig voru nemendur sem komu í skólann 1938, það er fyrir 50 árum. Nem- endur sem útskrifúðust 1948 voru einnig mættir. Fyrr- verandi skólastjórum var einnig boðið. Þessir hópar færðu skólanum góðar gjafir. Hér verða aðeins þrjár nefndar. Frá fyrstu nemendum forláta málverk af gamla skólanum eins og hann var í þeirri tíð. 50 ára nemendur færðu skólanum vandað borðtennisborð sem kemur að góðum notum en síðast skal nefnt mynd af Jóni Halldórs- syni sem gaf landið undir skólann, en það er gjöf frá nemendum sem útskrifúðust 1948. Þessar gjafir ásamt mörgum fleirum sem hér eru ekki nefndar skulu þakkað- ar fyrir hönd skólans. Þegar þessir gestir voru búnir að skoða, ,gamla skólanri' og sýninguna sem sett var upp, var boðið í affnæliskaffi í Aratungu. Þar voru haldnar fjölmargar ræður og gamli tíminn rifjaður upp. Þarna hittust margir sem ekki höfðu sést í langan tíma og urðu að vonum líflegar samræður. Þessi heimsókn stóð ffá kl. 2 til 6 síðdegis. Heimamenn og gestir voru ánægðir með daginn sem í alla staði tókst vel. Þ.Þ. Ljóð sem Sveinn A. Sæmundsson ffá Eiríksbakka flutti á afmæli skólans. Ég lít til baka um liðna tíð. Þá leiftra um huga minn ár og síð atvik frá bernskunnar árum. Sem lifandi myndir í ljúfum draumi þau líða fram með tímans straumi í lognöldu og léttum gárum. Hér átti ég spor um hæðir og hóla, hljóp eða gekk, var stundum að dóla með hesta, kindur og kýr. Þótt margt sé horfið, á mörgu sést bóla, ég minnist hér vem í góðum skóla, finnst andblærinn ennþá hlýr. Tímarnir breytast en margs er að minnast, margt er að þakka en raðirnar þynnast, þeirra er gengu hér glaðar um dyr. Og öldruð fáum við aftur að kynnast, eitt er víst, okkur mun ekki sinnast eindrægnin eins og fýrr. Á sex tugum ára sitthvað skeður, sorgir herja, en annað gleður, og samvera um stutta stund okkar er nutum hér æskudaga, eitthvað mun okkur hingað draga á þennan fagnaðarfúnd. |á, skólinn okkar hinn gamli góði er geymdur í lífsins minningasjóði, því syngjum við saman í dag. Við fögnum af alhug í orðum og ljóði, ýmsir kannske bara í hljóði. Lifi skólinn með hækkandi hag. Stemmning á staðnum: Vorið kveikir vinarbál, vakna blóm í sinni, vor í lofti, vor í sál, vor í náttúrunni.

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.