Litli Bergþór - 01.06.1988, Síða 12
12
ÖRNEFNI
í REYKHOLTI
í Reykholtshverfi og nágrenni þess er mjög fallegt og
fjölbreytt landslag. Það er kjörið til útivistar jafnt ungum
sem gömlum. En þar sem , .landslag væri lítils virði ef
það héti ekki neitt“ eins og segir í kvæðinu þótti okkur
ekki úr vegi að birta mynd af svæðinu og merkja inn á
örnefni sem höfð eru eftir Kristrúnu á Brautarhóli. Bjarni
Kristinsson aðstoðaði við kortagerðina og eru honum
færðar bestu þakkir fyrir. Það skal tekið fram að tölurnar
1-75 eru ekki óslitin töluröð, þar sem myndin nær ekki
yflr allt það svæði sem lýst er. j þ. þ>
Stóra-Fljót
Heimildarmaður: Kristrún Sæmundsdóttir, f. 1907.
Fluttist hingað 14 ára. Lærði örnefni af kunnugu fólki,
sem þá var þar fyrir. Búið er að breyta og skipta landi
jarðarinnar og byggja mörg garðyrkjubýli þar. Því fórum
við eftir hinu gamla landi Stóra-Fljóts en létum síðan
skiptingu liggja milli hluta
Lýsingin hefst við það býli sem nú nefnist Brautarhóll
(1). Hóllinn sem húsið stendurá, hét áðurKúla (2). Kúlu-
holt er norðan við, en mýrarsund var á milli. Holtið nær
nokkuð langt inn eftir. Það er mikið til ræktað nú. í mýr-
arsundinu var smárimi heldur þurrari og nefndur Beina-
rimi (4). Vestan við Kúluholtið, ofan við mýrarsundið,
var dálítill valllendisblettur nefndur Kinn (5) ; þar var
lambakofi eitt sinn, Kinnarkofi (6). Nátthagi (7) var
norðan megin í mýrarsundinu. Þar er nú slétt tún.
Heygarðshóll (8) var smáhæð sunnan við bæinn á Stóra-
Fljóti sem var. Þar var útbúinn graffeitur en hann hefir
aldrei verið notaður. Þar sem bærinn var eru nú fjárhús.
Tfeigur (9) var mýrarsvakki sunnan við hólinn. Heita
vatnið frá Reykholtshver rann um hann og því var stund-
um veitt á mýrina. Tfeigurinn var að mestu ofan við nú-
verandi veg en náði einnig suður fyrir hann. Jónsflöt var
slétt flöt í túninu vestan við Stóra-Fljótsbæinn en ofan
við hann (norðan) var Kvíaflöt. Þar voru færikvíar. Leyn-
ir var hvammur norðan í túninu og náði vestur að Borg-
arássundi en það er mýrarsund vestan við Borgarás og
nær langt inn eftir og skildi á milli Litla-Fljóts og Stóra-
Fljóts. Ofan og innan við Leyni var Hesthúshóll, hann er
nú í túni. Norðan við Kúluholt er mýrarsund, nokkuð
breitt. Þar innan við er Stöðulás, aflangur grjótás, stund-
um nefndur Réttarás, því austan undir honum var rétt.
Innan við hann var Borgarás og er smásund mjótt á
milli. Hann er nokkuð langur og nær innundir Flóða-
mýri, en svo heitir mýrin norðan við holtin og sunnan og
austan við Flókatjörn. Þar er dálítill silungur. Norðaust-
an við Borgarholt eru Smáholt, tvö lítil holt eða rimar.
Milli Smáholta og Borgaráss er mýrarsund. Flóð voru
fúaflóð þvert yfir Flóðamýri úr Flókatjörn og lágu út í
Fellsgil, en það fellur íTungufljót og er á merkjum á móti
Felli. Þar sem gilið kemur úr Flóðunum heitir Gilbotn.
Steinka var varða innarlega á Borgarás og var til að
varða leiðina í fjárhús innarlega á Borgarás og sauðahús,
sem voru innan við Flóðamýri syðst í Brattholti sem er
á mörkum milli Fells og Kjaranstaða. Sunnan við Smá-