Litli Bergþór - 01.06.1988, Page 14
14
holt og austur og norður af Borgarás er smárimi eða mói,
Torfholt. En torffista var víða allgóð í mýrunum innan
við. Meðffam Borgarás miðjum að austan er smátjörn,
Borgarástjörn. Innri-Helluás er aflangur grjótás n.-a. við
tjörnina. Þar var mikið hellutak og fengust þar stórar
hellur í áreffi. Fremri-Helluás er líkur ás sunnan við Innri-
Heiluás, en mýrarlægð var á milli. Sunnan við hann eru
mýrarsund, Stöðulás austanvið en Kúluholt sunnan við.
Vegholt (29) er grjótlaust móaholt í mýrinni austan við
ásana og lá vegurinn um það áður, en nú er hann aðeins
sunnar. Þessi mýri heitir öll Lambadalsmýri (30) og náði
niður með Fellsgili og suður fýrir veg allt að ReyWiolti.
Suðaustan við mýrina eru valllendisbörð, Lambadals-
börð (31) og síðan tekur við Umbadalur (32), lægð eða
dalur, sem nær niður að Fellsgili. Holtið sunnan við mýr-
ina heitir allt Reykholt (33). Litlaholt (34) er lágt holt
ffaman við Lambadalsmýri. Þar er nú búið að rækta
skóg og neðan við það er gróðrastöð, Birkilundur (35).
Ofar og nær holtinu er annað gróðurhúsabýli, Friðheim-
ar (36). Enn nær holtinu er Espiflöt (37), þar eru mörg
gróðurhús, kallaðist áður Sjónarhóll (38), en það var þó
ekki gamalt nafn. Austan við það býli er sumarbústaður,
Fljótsholt (39). Sunnan við það ergróðrastöðin Víðigerði
(40). Hæst í hlíðinni er húsið Gufuhlíð (41), rétt við
Reykholtshver (42), sem er mjög vatnsmikill hver. Hæð-
in ofan við hverinn heitir Hverahæð (43) en lægðin norð-
an við hana heitir Hveraskarð (44), dálítil lægð mosa-
gróin. Beint austur af Hveraskarði er Djúpagróf (45),
dalur inn í holtið að austan. Norðan við Hveraskarð er
smáhæð ónefnd, en enn norðar er Rekstrarskarð (46) og
liggur beint yfir holtið. Þegar hallar austur af heitir Kúa-
dalur (47). Þar er stór stakur klettur, Kúaklettur (48).
Norðan við Rekstrarskarð er bærinn Norðurbrún (49),
þar eru gróðurhús. Neðan við Kúadal eru Gálgaflatir
(50), þar var fjárhús. Gálgaklettar (51) eru norðan við
Gálgaflatir. Gálgahólar (52) eru klettastrýtur í átt að
Fellsgili. Gálgamói (53) heita grámosaflesjur, sem hallar
í átt að Lambadal. Gálgatóft (54) er fjárhústóft á Gálga-
flötum. Dælur (55) er mýrlendi austan við Reykholt og
austur að Tungufljóti. Bakkinn á fljótinu nefndist Dælu-
bakki (56). Dælubrún (57) heitir landið vestan við Dæl-
urnar, þar sem landið hækkar. Fljótið flæðir stundum
upp í Dælurnar. Austan í Reykholti er standberg, oftast
nefnt Bergið (58). Mýrarsund er milli þess og Dælubrún-
ar. Undir Berginu eru hellisskútar, Stórihellir (59) og Litli-
hellir (60). Sunnan í Reykholti eru klettastallar og vall-
lendishvammar, Pallar (61). Uppi á háhæðinni eru
grámosaflesjur, Mosar (62). Sunnan við Reykholt er
dalur, þar er Stekkatún (63). Stekkatúnsflatir (64) eru
suðaustan við það, valllendisflatir. Stekkatúnsklettur
(65) er svartur móbergsklettur vestan við Stekkatúnið.
Var oft nefndur Svartiklettur (66). Mýrin neðan við
Stekkatúnsflatir niður að Fljótinu heitir Stekkatúnsmýri
(67). Innan við hana, en framan við Dælur er Innri-
Sandhóll, en Fremri-Sandhóll er ffaman við mýrina.
Báðir eru rétt við Fljótið og alveg grónir. Sandhólabrún
er framhald í suður af Dælubrún. Birtingaholt (71) er nær
bænum norður af Kistuholti, sem var í landi Litla-Fljóts.
Þar er nú búið að rækta. Hlíðin framan við Reykholts-
hver heitir Hverahlíð (72). Mýrin niður af hlíðinni neðan
við barnaskólann hét Hveratunga (73). Heimamýri (74)
var norðan við Birtingaholt, nú ræktuð. Hveragil (75) var
lækur, sem rennur úr hvernum um mýrina. Það rennur
milli Kistuholts og Birtingaholts.
Skráð 23.6.1975
Haraldur Finnsson
umtré Haqkvæm
lausn
Límtré hf. framleiðir allar gerðir af límtrésbitum,
bognum og beinum, i stöðluðum breiddum: 42 mm,
56 mrn, 65 mm, Q0 mm, 1 1 5 mmJ40 mm, 1 60 mm,
185 mm og 215 mm. Aðrar breiddir framleiddar
eftir óskum.
Limtréð er afgreitt með skömmum fyrirvara, hvert
á land sem er. Og sérhæfð flutningatæki okkar tryggja
hámarks vörugæði og hraða afgreiðslu á áfangastað.
Gerum föst verðtilboð
i burðarvirki hvers konar lim-
trésbygginga svo sem:
íðnaðarhús, vörugeymslur,
hlöður og fleira.
LÍMTRÉ HF
FL ÚÐUM, HfíUNAMAWAHfíEPPf
80/ SELFOSS - Sihi 98-66750