Litli Bergþór - 01.06.1988, Blaðsíða 18

Litli Bergþór - 01.06.1988, Blaðsíða 18
18 iVÍSNAÞÁTTUR Ef ég reyni léttan leik, liðið mitt að kæta, er það mein að andans kveik, engin hitti væta. Ferskeytlan í formi sterk, fátt ég dái meira. Hún er lítið listaverk, lætur vel í eyra. Þættir Ómars Ragnarssonar ,,Hvað heldurðu" hafa orðið kveikja að nokkrum vísxun.“ Sigurinn til sóma telst, sigraðir eru smáðir. Ég er að vona allra helst að þeir vinni báðir. Það kom fram að menn voru málaðir í andliti áður en myndataka hófst. Hér er allt með glys og glans, gamlir ýmsu mæta. Skyndimálun skaparans skal nú endurbæta. Skallinn á Ómari var aðalyrkisefnið í fyrstu þáttunum. Ómar væri alveg núll með engan skalla, um hann vísur flestar fjalla, fínna gaman þekkist valla. Fljótlega fannst mér þetta yrkisefni vera misnotað. Þetta spjall um þennan blett þykir valla kímið, en orðið skalli er svo létt að það falli í rímið. Samsettu mannamyndirnar vöktu ýmsar hugmyndir. Ómar gæti orðið smart, arkað stoltur héðan, ef hann fengi efripart af henni Heiði léðan. Heiði trúi ég mætti margt, sem mundi gleðja vini, ef hún hefði efripart af Ómari Ragnarssyni. Stundum var dómarinn nokkuð harður að úrskurða að tíminn væri útrunninn. Ef þið verðið ívið sein, Ómars trufluð skvaldri, mundið þið bara mistiltein og myljið haus á Baldri. Hjálmar jónsson prófastur Skagfirðinga var að minum dómi fleygasti hagyrðingurinn sem fram kom í þáttum Ómars. Fýrir nokkrum árum var hann hér í Aratungu á kvöldvöku hjá Ungmennafélaginu. Þá gerði ég þessa vísu. Lætur Hjálmar ljóðagamm, leysa ský frá sólu. Erfast nú í ættir fram, auðæfin frá Bólu. Árnesingar féllu í fyrrnefndri spurningakeppni en gekk nokkuð vel eftir að þeir gengu aftur. Gæfúsólin gengur hring, garpar misjafnt duga. Afturgengið Árnesþing enginn nær að buga. Flosi Ólafsson var aðalstjarnan í síðustu þáttunum og hklega síst gleymdar vísurnar sem síðast voru gerðar. Þegar Árnesingar náðu að jafna í bili í lokakeppninni. Flosi ljóðin kveður klúr, klækjóttur og hrekkinn. Ragnheiður á svipinn súr, sígur niður í bekkinn. Lyftir brosi seggur súr, svipinn losar trega. Enn er Flosi karlinn klúr klæmist rosalega. Þeir elduðu grátt silfur, Flosi og Birgir Hartmannsson og bar margt á góma. Flosa kroppur flokkast svo, fýrir um það Birgir sagði. Framparturinn fer í 0 fellur krof á hrútabragði.

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.