Litli Bergþór - 01.05.1990, Blaðsíða 9
H
H - Listi óháðra.
Heilbrigðismál
eftir Gylfa Haraldsson
stuðningsmann H lista
Mörg ár eru síðan farið var að áforma
byggingu nýrrar heilsugæslustöðvar í
Laugarási fyrir læknishéraðið, enda þörfin
brýn. Geirharður Þorsteinsson arkitekt hefur
lokið við tillögu sem gerir ráð fyrir 550 fermetra
nýju húsi. Það áað standa neðarvið Launrétt,
en núverandi húsnæði gerir.
Öll aðstaða verður rúmgóð og glæsileg.
Nýja heilsugæsluhúsið kostar á núvirði rúmar
70 milljónir króna. Vonast ertil að byggingar-
framkvæmdir hefjist 1992 og Ijúki 1994.
Gamla húsnæði stöðvarinnar skal þá verða
heilsuræktarstöð, með góðri aðstöðu fyrir
sjúkraþjálfara með meiru. Fyrri áform um
byggingu dvalarheimilis fyrir aldraða í
Laugarási ber að vekja upp, því þörfin er
mikil. Dvalarheimilið á auðvitað að byggja
eins og nýja heilsugæslustöð í samvinnu
allra hreppa lækinishéraðsins.
Það eru hátt á þriðja hundrað íbúar í
héraðinu 65 ára og eldri og notfæri 10 prósent
þeirrasérmöguleikaádvalarheimilisplássier
augljóst hver þörfin er. Hæfileg stærð á
vinalegu dvalarheimili finnst mérvera 20 til 24
vistrými. Það hlýtur að vera skemmtilegra
fyrir aldraða, sem þurfa þessa þjónustu, að
geta dvalið í sveitinni eins lengi og hægt ertil
að njóta sín sem best. Auðvitað sér maður
þessi nýju hús í haganum umvafin gróðri og
þægilegu umhverfi. Góður félagsskapur er
líka mikilvægur, ásamt þjónustunni.
Bergholt er gott fyrir þá sem geta bjargað
sérmeira. Heimahjálpog hjúkrunþarfaðefla
og hefur verið sótt um hlutastarf fyrir
hjúkrunarfræðng íviðbóttil að getaveittfleirum
öldruðum þjónustu heima. Annað sem horfir
til framfara og snertir heilbrigði og hreinlæti í
sveitinni ertilkoma ruslagáma, en fjölga þarf
þeim og tæmasuma oftart.d. í Laugarási og
Reykholti.
Víða rennur skólp um eftir opnum skurðum
t.d í Laugarási og ber að laga þaö strax. Fátt
er eins mikilvægt í heilsugæslu og
fyrirbyggjandi aðgerðir gegn sjúkdómum.
Höldum því áfram að sækja fram, styrkjum
æskuna íheilbrigðu líferni ístarfi og leik. Góð
undirstaðaerfyriröllu.
Ferðamál
eftir Gústaf Sœland
10. mann á H lista
Gætum við Biskupstungnamenn gert meira
til að laða að ferðamenn?
Ég tel svo vera og margt af því þarf ekki að
kosta mikla peningaa. Við gætum t.d. merkt
ýmsar gönguleiðir hér og þar um sveitina,
(Brúarárskörð, Skálholtstungu, Vörðufell,
Bláfell, Pollengi og marga fleiri áhugaverða
staði.)
Við gætum sett silungaseiði í hin ýmsu vötn
sem eru í sveitinni og jafnvel búið til ný vötn
og selt veiðileyfi. Það er mikið spurt um slíkt.
Við eigum eftir fremsta megni að styðja viö
bakið á því starfi sem fram fer í Skálholti og
þeirri uppbyggingu sem á þar að verða.
í Haukadal eru ótal möguleikartil að auka
ferðamannastraum. Hvað til dæmis með
snjósleðaferðir inn á hálendið og ýmsar
vetraríþróttir, svo sem skíðaaðstöðu fyrir alla,
jafnt innan-sem utansveitar fólk.
Við Gullfoss þurfum viö að knýja á um
úrbætur og láta merkja gönguleiðir.
í Reykholti þurfum við fyrst og fremst að
auka aöstöðuna viö sundlaugina, svo sem
með barnapotti, setlaug með leiktækjum fyrir
börn og koma upp minigolfi. Flýta gerð
golfvallar.
Við gætum stofnað almenningshlutafélag í
sveitinni til að koma á fót leigubústöðum meö
setlaugum og annari aðstöðu. Við verðum
þó að gæta þess að þessu fylgja ýmsar
kvaðir og megum við ekki fá dollaraglýju í
augun, heldur taka á þessum málum af
raunsæi.
Til þess að koma þessu af stað ættum við
að stofna Ferðamálaráö Biskupstungna.
Þangað sem menn gætu komið með
hugmyndirogfengið hugmyndirog aðstoðtil
þess að koma hlutunum af stað.
Okkur ber skylda til að auglýsa sveitina
okkar og allt það góöa sem hún hefur upp á
að bjóða og hætta að fjasa um það sem
miður fer. Reynum heldur að lagfæra það í
rólegheitum.
Ef við tökum höndum saman þá tekst
ýmislegt.
Litli - Bergþór 9