Litli Bergþór - 01.05.2008, Side 4
Hvað segirðu til?
Helstu tíðindi úr sveitinni í mars til maí 2008
Á útmánuðum var fremur mild vetrartíð hér
um slóðir. Snjór var lítill en nokkuð misjafn eftir
sveitarhlutum, mestur við jaðar hálendisins en minni
sunnar. Þó snjóaði allmikið einn dag snemma í
apríl, en hann féll í logni og mældist einir 20 - 25
cm. Eftir það gerði nokkurra daga hlýindi með um
eða yfir 10°C hita, hvarf þá snjórinn á hljóðlátan
hátt og án vatnsflóða. Fremur hlýtt var fram á
sumar og fraus það ekki saman við veturinn hér um
slóðir.
í fyrstu viku maí hlýnaði verulega og vætti
nokkuð, svo gróður lifnaði. Þá fóru gras- og korn-
bændur að plæ&ja tún til endurræktunar og væntan-
lega kornakra, og um miðjan maí voru margir búnir
að ganga frá nýræktum og kornökrum. Þá voru tún
í góðri rækt víða orðin algræn og sumir bændur
farnir að bera á þau tilbúinn áburð. Margar trjáteg-
undir laufguðust í fyrri hluta maí, en grænn litur á
birki var lítið áberandi fyrr en í síðari hluta þess
mánaðar.
Farfuglar komu margir um og upp úr miðjum
apríl, og virtust álftir og gæsir finna sér fæðu m. a. í
flögum eftir kornakra frá í fyrra. Líklega hafa flestir
væntanlegir fuglar verið komnir á sumarstöðvar í
byggð snemma í maí og margir farnir að halda til
fjalla um miðjan þann mánuð.
Nýja brúin á Brúará vestan við Spóastaði var
opnuð til umferðar rétt fyrir sumarmál.
Langt er komið að byggja íbúðarhús í Höfða 2,
og í Vegatungu hefur verið byggt nautgripahús, þar
sem fjárhús stóð fram á síðasta vetur. Tvö
gróðurhús í Varmagerði voru jöfnuð við jörðu á
útmánuðum.
Hestamannafélagið Logi, Leikdeild Ungmenna-
félagsins og Kvenfélagið héldu sameiginlega
árshátíð í Aratungu í byrjun apríl. Veislustjóri var
„hinn alkunni skemmtikraftur Guðni Ágústsson“
(eins og hann var kynntur í tilkynningu frá nefndinni,
sem sá um samkomuna), Ole Olesen sá um veitingar.
Leikdeildin flutti skemmtidagskrá og hljómsveitin
Karma lék fyrir dansi.
Messað var í öllum sóknarkirkjunum í
Skálholtsprestakalli um bænadaga og páska, ein-
nig í Uthlíðarkirkju, þrisvar í Skálholtskirkju og
þar voru einnig tónleikar að kvöldi föstudagsins
langa. Þar flutti Kammerkór Biskupstungna trúarle-
ga tónlist undir stjórn Henriettu Oskar
Gunnarsdóttur og Kristínar Magdalenu Ágústsdóttur
og við undirleik Guðjóns Halldórs Oskarssonar.
Hátíðahöld vegna 100 ára afmælis Umf. Bisk.
hafa haldið áfram samkvæmt áætlun. Sjónleikurinn
Leynimelur 13 var sýndur 12 sinnum í Aratungu. Á
undan sýningum um helgar var boðið upp á „léttan
leikhúsmatseðil“.
Afmælishátíð var í Reykholti á sumardaginn
fyrsta. Fyrri þáttur hennar var íþróttasýning í leik-
fimisalnum. Þar sýndu fimm til 16 ára nemendur
Álfaborgar og Reykholtsskóla fimi sína í mörgum
íþróttagreinum og nokkrir foreldrar tóku áskorunum
barna sinna um þátttöku. Dagskrárstjóri var Jón
Bjarnason frá Skeiðháholti. Hátíðardagskrá var í
Aratungu að kvöldi þess sama dags. Henni stjórnaði
Gunnar Sverrisson í Hrosshaga, formaður afmælis-
nefndar. Formaður Ungmennafélagsins, Guttormur
Bjarnason í Skálholti, flutti ávarp og heiðraði
nokkra fyrrverandi og núverandi félaga og lýsti kjöri
sjö nýrra heiðursfélaga Ungmennafélagsins.
Skemmtiatriði voru söngur Henriettu Oskar
Gunnarsdóttur í Reykholti og Steinunnar
Bjarnadóttur á Brautarhóli og atriði úr sjónleiknum
Síldin kemur og síldin fer, sem sýndur var hér fyrir
10 árum, og félagar úr Leikdeildinni fluttu.
Heimasíða Ungmennafélagsins, http://umfbisk.
blaskogabyggd.is, var opnuð, en hana gerði Kristín
Guðbjörnsdóttir á Lambabrún 1. Gaf hún félaginu
síðuna til minningar um ömmusystkini sín, Guðríði,
Þórarinn og Þorstein Þorsteinsbörn frá
Drumboddsstöðum, sem voru meðal helstu hvata-
manna að stofnun þess og driffjaðrir í starfi fyrstu
árin og áratugina. Margrét Baldursdóttir á Krók
flutti ljóðið „Á liðinni öld“, sem hún hafði ort í til-
efni afmælisins. Nokkrir gestir fluttu ávörp og
Guðmundar og Lofts
i vgl@simnet.is
3102-3010
Viðgerðir á búvélum og öðrum tækjum í landbúnaði. Bifvélaviðgerðir
Smurþjónusta Oliusiur í bíla og dráttarvélar - Framrúöuskipti - Smíðum háþrýstislöngur
Litli Bergþór 4