Litli Bergþór - 01.05.2008, Blaðsíða 16

Litli Bergþór - 01.05.2008, Blaðsíða 16
Ungmennafélag Biskupstungna 100 ára Aldargamalt ungmennafélag Hér verða birtir nokkrir kaflar úr sögu Ungmennafélagsins á árunum 1908 - 1915, og er það að mestu leyti byggt á „Starfsbók“ þess frá fyrsta sumardegi 1908 til 20. 6. 1915, sem er geymd á Héraðsskjalasafni Arnesinga. Nánar er greint frá sögu þessara ára á heimasíðu Ungmennafélagsins, sem er vistuð hjá Bláskógabyggð undir liðnum Iþrótta- og æskulýðs- mál. Leiðin er þessi: http://umfbisk.blaskogabyggd.is/ Aðaldeild - Söguskráning - Aldarsaga. Stofnun A sumardaginn fyrsta, 23. apríl 1908, var kalt. Þá komu 30 manns saman á Vatnsleysu til að stofna ungmennafélag. Ekki er ljóst hvort fundurinn var haldinn í gamla þinghúsinu, sem stóð vestast í bæjarröðinni, eða í baðstofunni á vesturbænum. Hvottveggja var þetta þar sem nú er íbúðarhúsið á Vatnsleysu 1 eða suðvestan við það. Líklega hefur verið kalt í þinghúsinu þennan dag, en Þorsteinn Sigurðsson, sem var að alast upp í austurbænum á þessum árum, sagði frá því að hann hefði stundum rennt sér fótskriðu á svellinu á gólfi þess. í vesturbænum bjó þá Halldór, sem hafði viður- nefnið „ríki“. f matsgjörð, sem gerð var nokkrum árum seinna, kemur fram að þar hafi verið timbur- bær með járnþökum og baðstofan rúmlega átta m löng og tæpir fjögurra m á breidd. í þessum bæ var búið í nær 30 ár eftir þetta. Til er fundargerð frá þessum fundi, og var hún birt í Litla-Bergþóri, 3. tölublaði 9. árgangs, sem út kom í desember 1988. Hún hefst á þessa leið: „Hinn fyrsta sumardag 1908 varfundur haldinn að Vatnsleysu í Biskupstungum. Var það að tilhlutan „Málfundarfélags Ytritungunnar", og skyldi rœða um stofnun ungmennafélags í sveitinni. Veður var kalt og mættu þvífáir - um 30 alls. Þorsteinn Þorsteinn Finnbogason. Litli Bergþór 16 kennari Finnbogason setti fundinn og nefndi til fundarstjóra Þorfinn Þórarinsson búfræðing á Drumboddsstöðum, en hann aftur skrifara Jóhannes Erlendsson organista á Torfastöðum. “ Þorsteinn Finnbogason, f. 20. 7. 1880, var far- kennari hér í sveit veturinn 1907-1908. Kona hans var Jóhanna Greipsdóttir, f. í Bryggju 6. 1. 1884 og áttu þau heima í Haukadal þennan vetur. Þorsteinn var áhugamaður um félagsmál og hefur væntanlega kynnst vel starfi Unglingafélags Eystritungunnar og Málfundafélagi Ytritungunnar. Það mun hafa verið að frumkvæði síðarnefnda félagsins að þessi fundur var haldinn. Fram kemur á fundinum að félagar í Unglingafélagi Eystritungunnar höfðu breytt nafni þess í Ungmennafélag Eystritungunnar og breytt lögum þess þannig að þau væru í samræmi við lög Ungmennafélags Islands og voru þeir farnir að undirrita „skuldbindingaskrá“ þess. Síðan segir í fundargerð: „varð sá endir á eftir eigi miklar umrœður að stofnað var eitt sameiginlegt ungmennafélag fyrir allan Biskupstungnahrepp. Var ritað undir skuldbindingaskrá þá er Ungmennafélag Eystritungunnar hafði áður byrjað að undirrita. “ Um stjórnarkjör segir: „Stjórn sú er Ungmennafélag Eystritungunnar hafði kosið (Þorfinnur Þórarinsson, Viktoría Guðmundsdóttir og Páll Þorsteinsson) skyldi gegna störfum sínum til hausts. Afhálfu Ytritungumanna voru kosin í stjórn: Þorsteinn Finnbogason, Bergur Jónsson og Sveinn Eiríksson í Miklaholti. “ Fundargerðinni lýkur þannig: „Rœtt var nokkuð um starfog stefnu ungmennafélaga yfirleitt. Lenti framsögumanni og fundarstjóra þá saman í kappræðum nokkrum um vínsölu, bannlög og fleira þesskonar. Var hinn síðarnefiidi öllum bannlögum mótfallinn. En allir vildu að hið nýstofnaða félag hefði bindindi í lögum. Dans og söngur að lokum. “

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.