Litli Bergþór - 01.05.2008, Blaðsíða 27

Litli Bergþór - 01.05.2008, Blaðsíða 27
Þetta fær góðar undirtektir og er ferðin farin skömmu eftir mitt sumar, og er í starfsbókinni eftir- farandi frásögn af henni: „Skemmtiför. 5. fundur 3. félagsár. Sunnudaginn 31.júlí 1910 fór Ungmennafélag Biskupstungna sameiginlega skemmtiför til Bjarnarvalla og víðar. Félagar mættust hjá Austurhlíð kl. 1 e. hád. Riðu síðan „inn á Dal“ og sem leið liggur til Bjarnarvalla. Var þar sprett af hestunum og héldu menn kyrru fyrir alllengi. Var þar ýmislegt haft til skemmtunar; söngur, hlaup, stökk, glímur o.fl. Margir gengu í klettagil, er var í fjallinu, og klifruðu þar svo langt sem unnt var. Tölu flutti Viktoría Guðmundsdóttir; nefiidi hún hana Hvað á það að þýða? Talaði um þýðingu þá er hún vonaði að þessiför og aðrar slíkar gœtu haft fyrir œttjarðarást manna. Minntist þess að þeir ynnu oftast landi sínu mest er flestafagra bletti þekktu. Tók til dœmis Eggert Olafsson og Jónas Hallgrímsson. Eftir alllanga dvöl á samkomustaðnum riðu menn aftur á stað ogfóru nú aðra leið; riðu yfir hálsinn milli Bjarnarfells og Sandfells. Staðnœmdust hjá reyniviðarhríslu gamalli fyrir ofan Helludal. Par flutti Ingvar Guðmundsson tölu fyrir minni lslands. Talaði einkum um rœktun landsins. Benti mönnum á hve sáralítið er ræktað aflslandi. Síðan riðu menn til Geysis. Var dvalið þar nokkra stund. Félagar drukku kaffi í veitingahúsinu þar. Jón bóndi á Laug sýndi félaginu þá gestrisni að bera sápu í hver einn lítinn, er gaus síðan; var mörg- um félögum að því mikið gaman. Sumir skemmtu sér nokkra stund við dans. Aður menn skildu talaði formaður félagsins, Þorsteinn Þórarinsson, nokkur orð. Þakkaði félögum hve vel þeir hefðu sótt skemmtiför þessa, rœðumönnum fyrir tölur þeirra og húsráðendum á Laug fiyrir gestrisni. Minntist félagsins með hlýjum orðum og óskaði öllum að skilnaði góðrar ferðar og farsællar heimkomu. Samkoma þessi var mjög vel sótt; nœr allir reglulegir félagar viðstaddir og auk þess 3 tímafélagar (kaupafólk). Samkomunni slitið. “ Hreppsnefndarfréttir Úr fundargerðum sveitarstjórnar og byggðaráðs Ytarlegri fréttir af þessum vettvangi má finna í fundargerðum í heild á vef Bláskógabyggðar, www.blaskogabyggd.is. 77. fundur byggðaráðs var haldinn 26. febrúar 2008 • Rætt um tillögu verkefnastjórnar sorpsamlaganna á Suðurlandi um framtíðarlausnir í úrgangsmálum. • Lagt til að bætt verði við flokki í gjaldskrá leikskóla. 83. fundur sveitarstjórnar var haldinn 4. mars 2008 • Kynnt var 3ja ára áætlun Bláskógabyggðar 2009- 2011 (síðari umræða) og var hún samþykkt samhljóða. • Samþykktir og gjaldskrár vegna fráveitu og rotþróa annars vegar og hundahalds hinsvegar voru til umfjöll- unar og voru þær samþykktar. • Fyrri umræða um reglugerð Bláskógaveitu fór fram og var vísað til annarar umræðu. • Sveitarstjóm fagnaði því að Bræðratunguvegur/ Hvítárbrú er komin á útboðsáætlun 2008 og óskar eftir samstarfi við Vegagerð vegna Reykjavegar. 84. fundur sveitarstjórnar var haldinn 27. mars 2008 • Til umfjöllunar var umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir byggingu Lyngdalsheiðarvegar. Sveitarstjóm samþykkti samhljóða afgreiðslu skipulagsnefndar Uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps varðandi þetta. 78. fundur byggðaráðs var haldinn 1. apríl 2008 • Lóðum var úthlutað bæði í Reykholti og á Laugar- vatni. • Skipulagsmál komu til umræðu vegna athugasemda við deiliskipulag á Iðu II. • Erindi frá „Vaski á bakka“ um minkaveiðar var afgreitt. 85. fundur sveitarstjórnar var haldinn 8. apríl • Rætt var um að stofna byggðasamlag um embætti skipulags- og byggingarfulltrúa Uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps • Reglugerð Bláskógaveitu kom til síðari umræðu og var samþykkt samhljóða. • Skipt var um fulltrúa í fræðslunefnd af hálfu beggja lista. • Rætt var um fundarhöld með íbúum og barnakóra- starf í sveitinni. 78. fundur byggðaráðs var haldinn 29. apríl 2008 • Rætt var um skipulagsmál. • Lagt var til að starfsmönnum sveitarfélagsins verði gefinn kostur á fríkortum í íþróttamannvirki en hver stofnun taki á sig kostnað vegna sinna starfsmanna. 86. fundur sveitarstjórnar var haldinn 6. maí 2008 • Ársreikningur Bláskógabyggðar var lagður fram til fyrri umræðu. • Breytingar á samþykktum Bláskógabyggðar voru til síðari umræðu og voru samþykktar. • Rætt var um reiðvegi og hvernig hægt sé að sporna við umferð vélknúinna farartækja á þeim. • T-listinn lagði til að leikskólar Bláskógabyggðar fái eina yfirstjórn en Þ-listinn hafnaði því. • Rætt var um framkvæmdir við kaldavatnsveitu og fjármögnun á þeim. 27 Litli Bergþór

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.