Litli Bergþór - 01.05.2008, Blaðsíða 6
Ingibjörg G. Jónsdóttir
Minning
Ingibjörg umkringd sveitarstjórnarmönnum í Svartárbotnum á vígsludegi Gíslaskála.
Ingibjörg var fædd á Skárastöðum í Fremri-
Torfustaðahreppi í Vestur-Húnavatnssýslu 10.
desember 1932. Foreldrar hennar voru Jenný
Guðmundsdóttir og Jón Sveinsson bændur þar, var
hún næstelst sjö systkina. Tólf ára gömul flutti hún
með foreldrum sínum að Hnausakoti í sömu sveit.
Þrem árum síðar réði hún sig í vist á heimili í
Keflavík og var þar tvo vetur og síðan aðra tvo í
Reykjavík. A sumrin var hún jafnan í kaupavinnu á
æskustöðvunum.
Veturinn 1951 til 1952 var hún í Húsmæðraskólan-
um á Varmalandi í Borgarfirði, en bæði á undan og
eftir starfaði hún við Bændaskólann á Hvanneyri. Þar
kynntist hún jafnaldra sínum Gísla Einarssyni frá
Kjarnholtum í Biskupstungum og giftust þau árið
1956. Um skamman tíma bjuggu þau í Skerja-
firðinum í Reykjavík en fluttu svo að Hólum í
Hjaltadal, þar sem Gísli var ráðsmaður, og síðar að
Þorleifskoti í Hraungerðishreppi, þegar Gísli gerðist
starfsmaður við Sæðingastöðina þar.
Vorið 1959 hófu þau búskap á nýbýli, sem þau
höfðu stofnað og hlaut nafnið Kjarnholt 2. Bjuggu
þau þar í 20 ár, aðallega með sauðfé og einnig svín
um tíma. Þau eignuðust fjögur börn, sem öll lifa
foreldra sína.
Gísli varð oddviti Biskupstungnahrepps árið 1974
og gegndi því starfi í 24 ár. Á fyrri hluta þess tíma
var skrifstofa hreppsins á heimili þeirra og fylgdi því
mikið ónæði og gestagangur. Sjálfsagt þótti að allir
þæðu góðgerðir, sem Ingibjörg veitti af rausn og
myndarskap. Einnig þurfti Gísli að vera mikið að
heiman og bar Ingibjörg þá alla ábyrgð á barnaupp-
eldi, heimilishaldi og búskap.
Eftir andlát Gísla vorið 1999 flutti Ingibjörg í
Kistuholt í Reykholti, þar sem hún átti heima eftir
það. Hún virtist kunna vel við sig í þéttbýlinu og
nýtti sér afþreyingu, sem þar var í boði. Tók hún
mikinn þátt í starfi Félags eldri borgara, bæði
samkomum og fleiru heima fyrir og ferðalögum. Var
hún þar hrókur fagnaðar.
Ingibjörg lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 3. maí 2008
eftir nokkurra daga legu þar. Utför hennar fór fram
frá Skálholtskirkju 10. maí, en hún var jarðsett í
Haukadalskirkjugarði. A. K.
Ketilbjörn ehf.
vinnuvélaverktaki
Syðri-Reykjum.
Grímur Pór - Sími 892 3444
Litli Bergþór 6