Litli Bergþór - 01.12.2009, Síða 6

Litli Bergþór - 01.12.2009, Síða 6
• Sett var varanlegt slitlag á hluta Bjrakarbrautar í Reykholti. • Iris Blandon í Ekru fór með hlutverk í kvikmyndinni Jóhannesi sem frumsýnd var í haust. • Prjónakaffi hefur verið haldið á Kaffi Kletti á hálfs mánaðar fresti í vetur við góðar undirtektir. • Kvenfélagið gaf út dagatalið „Tvær úr Tungunum fyrir árið 2010. Þar sátu konur úr félaginu fyrir léttklæddar. • Jólamarkaður Kvenfélagsins var haldinn 28. nóvember í Aratungu. • Kaffi Klettur fékk styrk frá Menningarráði Suðurlands til að standa undir fimm menningarkvöldum í vetur. Munu þessi kvöld fjalla um sagnahefðir, gamlan söng og svokallaðar druslur. Alls er um að ræða fimm kvöld en eitt þeirra er afstaðið. • Engi fékk styrk frá Menningarráði Suðurlands til gerðar kryddjurtagarðs. Engi var líka tilnefnt til Umhverfisverðlauna Ferðamálaráðs. Brúin yfir Hvítá við Brœðratungit í smíðum. (mynd Svava Theodórsdóttir) • Verið er að smíða brú yfir Hvítá á móts við Bræðratungu og Flúðir og byggja upp veginn yfir Eystri Tunguna í sambandi við það. • Seint í nóvember var tekin fyrsta skóflustungan að nýju verslunarhúsnæði við Skólaveg í Reykholti. Það eru Inga Þyri Kjartansdóttir og Bergþór G. Ulfarsson sem standa að byggingunni. • Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hélt sex fundi á tímabilinu frá því í byrjun apríl til dagsins í dag og voru þeir nr. 100-106. Þá hélt byggðaráð fundi nr. 89-95 á þessum tíma. • Gerður var samningur við Steinku Bjarna um rekstur tjaldsvæðis í Reykholti • Steina byggði glæsilegt þjónustuhús með snyrtiaðstöðu við tjaldstæðið. • Aukið var við stöðugildi félagsmálafulltrúa hjá Uppsveitum Arnessýslu og Flóahreppi og gerðar voru lagfæringar á húnsæði embættisins í liúsi Heilsugæslunnar í Laugarási. • Samstarfssamningur við Grímsnes og Grafningshrepp um rekstur grunnskóla var fram- lengdur til loka skólaársins 2012-2013. • Gámaþjónustan hf. átti lægsta tilboð í sorphirðu í Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi og var því tilboði tekið. Byggð hefur verið mót- tökustöð sorps við Vegholt 8 í Reykholti og tunnu- hriðing sorps hófst þann 1. október frá heimilum í Bláskógabyggð. • Nýtt deiliskipulag var samþykkt fyrir ferða- þjónustusvæði við Hótel Geysi og Geysisstofu í Haukadal. • Arsreikningur Bláskógabyggðar fyrir rekstrar- árið 2008 var lagður fram, samþykktur samhljóða og áritaður. • T listinn lagði til að oddviti minnkaði starfshlut- fall sitt niður í 20% úr 80% í sparnaðarskyni en til- lagan var felld. • Akveðið var að hækka ekki ^jaldskrá leik- skólanna í sveitarfélaginu. ST Ketilbjörn ehf. vinnuvélaverktaki Syðri-Reykjum. Grímur Þór - Sími 892 3444 Litli Bergþór 6

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.