Litli Bergþór - 01.12.2009, Page 8
staðreyndum niður með félögunum! Og mikið sváfum við
öll vel þessa fyrstu nótt okkar í Berlín, allir sáttir við
frábært hótel.
Föstudagur 5. júní. Frjáls dagur til kl. 19. Sumir fóru í
útsýnisferð með þýskum vinum, aðrir í innkaupaleiðangra,
eða kynntu sér strætó- og lestarsamgöngur milli hótels og
Gethsemanekirkjunnar.
Um kvöldið var komið að fyrstu samæfingu kóranna.
Kl. 19 söfnuðust 24 íslenskir kórfélagar saman og rúmlega
100 þýskir ásamt stórum barnakór í þessari yndislega
fallegu kirkju. Og á morgun voru stóru tónleikarnir okkar,
svo nú var eins gott að láta hendur standa fram úr ermum!
Við vorum ein röð af fimrn til sex röðum alls, lítil
eining í miðjum kór, en okkur leið vel og við fundum að
við vorum ekki síður undirbúin en þýski kórinn, og það
var gott! Ótrúlegt batterí.
Æfingin gekk vel undir stjórn Elísabetar og á eftir fóru
allir heim að sofa - nema þeir sem hittust aðeins á
hótelbarnum til að ræða málin.
Yngsti og elsti ferðafélaginn, Hildur María Jóhannesdóttir á Brekku
og Bragi Þorsteinsson á Vatnsleysu.
Laugardagur 6. júní. Stórtónleikar Skálholtskórsins,
Kórs Gethsemanekirkjunnar, (Gethsemane Kantorei),
Bama og unglingakórs Söngskóla kirkjunnar og
hljómsveitar Gethsemanekirkjunnar ásamt íslenskum
hljóðfæraleikurum.
Það var komið að því.
Generalprufan var klukkan eitt í kirkjunni, með
hljómsveit og öllum kórum þar sem rennt var yfir allt
prógrammið, samræmt og snurfusað. Gaman að fylgjast
með barnakórnum hennar Elísabetar, glöðum og áhuga-
sömum krökkum sem sungu svo fallega og foreldrunum
sem sáu um að allt gekk smurt. Ekki laust við að það vekti
góðar minningar um barnakórastarf Hilmars Arnar. Eitt
merki þess hve dýrmætt kórstarf með börnum er.
Söngstarfið sem Elísabet organisti og kórstjóri hefur
byggt upp þarna í Gethsemanekirkjunni, og við kynntumst
í þessari heimsókn okkar til Berlínar, er reyndar
stórmerkilegt. Hún starfrækir barna- og unglingakórskóla
í mörgum deildum við kirkjuna, þar sem syngja börn á
öllum aldri, frá ungabörnum og upp í unglinga, auk þess
sem hún stofnaði fullorðinskór kirkjunnar, sem hefur
vaxið upp í það sem hann er nú, yfir 100 manns.
Nú var þetta orðið of mikið fyrir eina manneskju, svo
hún hafði ákveðið að hætta sem kórstjóri kirkjukórsins til
að geta gefið barnakórunum meiri tíma. Það kom semsagt
Móttökunefndin á flugvellinum íBerlín.
Golþorskinum var reddað í frost og þar með voru allir
áhyggjulausir.
Þær ferðanefndarkonur og Camilla bankastjóri, hinn
frábæri gjaldkeri kórsins til margra ára, höfðu í sparnaðar-
skini fyrir kórinn, beðið um aukarúm inn á tveggja manna
herbergi og ætluðu að vera þar þrjár saman. Og þegar allir
höfðu fengið lykil að sínum lúxusherbergjum með öllum
þægindum, eltu þær samviskusamar þjóninn upp á
tveggjamannaherbergið sitt með aukarúminu. - En viti
menn, þegar inn var komið reyndist þetta vera
drottningarsvíta hótelsins, 100 fermetra íbúð með þrem
herbergjum, bar, eldhúsi, lúxus baðherbergi með
nuddbaðkeri og öllum hugsanlegum þægindum! Ekki
furða að þær væru ögn kindarlegar þegar þær töltu
skömmu síðar niður á barinn til að skola þessum
Ósk og Heiða, ferðanefndarkonur fyrir framan innganginn að
kirkjunni. íbaksýn er auglýsingarborði fyrir tónleikana okkar.
Litli Bergþór 8