Litli Bergþór - 01.12.2009, Síða 12

Litli Bergþór - 01.12.2009, Síða 12
„Eg held að ég hafi stundum verið eins og Siggi Sigurjóns í Dalalífi“ Viðtal við Guttorm Bjarnason kirkjubónda og félagsmálamann í Skálholti Uppruni og fjölskylda Ég er fæddur á Stöðulfelli í Gnúpverjahreppi þann 10. júní 1959. Faðir minn var Bjarni Gíslason, fæddur á Dalbæ í Flóa en alinn upp í Sandlækjarkoti í Gnúpverja- hreppi. Móðir mín er Bryndís Eiríksdóttir, hún er austan af Héraði, frá Egilsseli í Fellnahreppi. Hennar leið á Suðurlandið lá fyrst til náms í Hússtjórnarskólann í Hveragerði 1941 og síðan sem ráðskona að Sandlæk í Gnúpverjahreppi þar sem að kynni hennar og föður míns tókust. Þau keyptu síðan fjórða partinn af Þrándar- holtinu af Eiríki Jónssyni fóstra föður míns, sem nú heitir Stöðulfell og reistu sér þar bú. Þau bjuggu þar blönduðu búi yfir 40 ár. Faðir minn lést árið 1999 en móðir mín hefur verið búsett á dvalarheimilinu Ási í Hveragerði þar sem hún nýtur mjög góðrar umönnunar. Við erum átta systkinin. Elst er Margrét, þá Eiríkur, Sigríður og Guðrún Elísabet en þau eru öll búsett á höfuðborgarsvæðinu. Þriðji yngsti bróðirinn sem hét Gísli, lést úr krabbameini árið 1978. Næstyngstur er Oddur sem tók við búskapnum af foreldrum mínum og býr á Stöðulfelli og síðastur er svo ég. Foreldrar Guttorms, Bryndís Eiríksdóttir og Bjarni Gíslason Konan mín heitir Signý Berglind Guðmundsdóttir og er fædd 4. júlí 1961 í smáíbúðahverfinu í Reykja- vík þar sem hún ólst upp. Hún er næst yngst af fjórum systkinum, dóttir Guðmundar Magnússonar, bifvéla- virkja og Evu Maríu Jost Magnússon húsfreyju. Signý varð stúdent frá Menntaskólanum við Sund, fór þaðan í Kennaraháskólann og útskrifaðist sem kennari 1982. Við eigum þrjár dætur: Droplaugu sem er fædd 2. júní 1986, hún er stundar nám í viðskiptafræði við Háskóla Islands, Alexöndru sem er fædd 31. ágúst 1989, hún nemur lífeindafræði í Háskóla íslands og Margréti sem er fædd 7. janúar 1996, hún er enn í grunnskóla. Nám og störf Ég kláraði mína barnaskólagöngu í Ásaskóla í Gnúpverjahreppi, tók síðan unglingaskólann, eins og fjórir síðustu bekkimir í grunnskóla hétu þá, á Flúðum. Þaðan fór ég smá tíma út á vinnumarkaðinn og eftir það í Iðnskólann í Reykjavík. Þar valdi ég málmiðnaðar- deild og fór síðan í bifreiðasmíði sem ég vann við í Bifreiðasmiðju Ragnars Valssonar í Kópavogi. Signýju hafði ég kynnst áður en ég byrjaði í Iðnskólanum en hún kom austur sem vinnukona á stórt kjúklingabú sem þá var að Klettum í Gnúpverjahreppi. Úr varð að við rugluðum reitum okkar saman og fórum að standa á eigin fótum í Kópavoginum. Að námi loknu fór Signý að kenna í Kópavogsskóla en ég hélt áfram að vinna hjá Ragnari Valssyni, þar sem ég hafði verið minn námstíma. Sú vinna fólst að mestu í að byggja yfir pallbfla, bæði fyrir einkaaðila og ríkis- stofnanir, s.s. Rafmagnsveituna, Póst og síma, Orku- stofnun og fleiri sem þurftu talsvert breytta bfla. Síðan var einnig mikið af sérsmíði fyrir einstaklinga. Þegar húsbíladraumurinn byrjaði þá innréttuðum við mikið af þeim, þannig að ég bý yfir nokkuð fjölþættri reynslu í bifreiðasmíði. Það var svo árið 1991 að það var komin svolítil þreyta í mig á þessari stöðugu inniveru og talsverðum hávaða í þessari járnavinnu og okkur var farið að langa til að breyta til. Við skoðuðum m.a. þann möguleika að Signý gerðist kennari hérna við Reykholtsskóla, við fórum á fund hingað til að athuga með húsnæði en það reyndist vera frekar þröngt um það hérna á þeim tíma. Á sama tíma var auglýst kennarastaða á Kirkju- bæjarklaustri sem við ákváðum að athuga með. Það var á björtum og fallegum maídegi sem við brunuðum þangað til að skoða aðstæður, veðrið var svo fallegt að fólk spókaði sig um á stuttbuxum, ég held að það hafi átt talsverðan þátt í að það umhverfi freistaði. Okkur t'íV) bifreiðasmíði. Litli Bergþór 12

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.