Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1991, Side 1
FRETTABREF
'TFRÆÐEPELAGSINS
l.tbl. 9. árg. Febrúar 1991
Kveðjuorð frá formanni
Eins og undirritaður lýsti yfir eftir stjómarkjör á síðasta aðalfundi, er það ekki ætlun mín að gegna
lengur störfum sem formaður félagsins en út þetta kjörtímabil. Á aðalfundi þann 28. þ.m. verður því
kosið um nýjan formann, auk þess sem vænta má annarra breytinga á stjóminni.
Það hefur verið mér ánægja að leggja hér hönd á plóginn að rífa félagið upp úr þeirri ládeyðu,
sem það var komið í, þegar núverandi stjóm var kjörin til starfa í nóv. 1989. Félagslífið fór að ganga
með eðlilegum hætti, almennir fundir haldnir reglulega, fundasókn hefur verið með ágætum og
félagsandi góður. Stjómin hefur haldið ótal fundi og verið samhent í skipulagningu starfsins og
afgreiðslu verkefna sinna. Meðal helztu verka, sem komið hefur verið um kring, er flutningur bóka-
lagers félagsins á einn geymslustað, þar sem húsnæði var tekið á leigu (að Melgerði í Kópavogi; það
verk hvíldi mest á gjaldkeranum, Þórami B. Guðmundssyni, með aðstoð Hólmfríðar varaformanns);
fjármálunum hefur verið komið í gott horf og Þórarinn unnið mikið starf í því efni, auk þess að hafa
umsjón með afgreiðslu félagsbókanna, innheimtu félagsgjalda og endurnýjun á áskriftarlistanum.
Þorri stjómarmanna hittist reglulega til að pakka niður fréttabréfinu og merkja umslögin; það er alltaf
nokkurra tíma verk, einhæft, en skemmtilegt í góðum hópi. Nýtt félagatal var tekið saman, að því
vann fyrst og fremst spjaldskrámefnd félagsins, en Magnea Ingibjörg Ólafsdóttir á þar sérstakar
þakkir skildar fyrir mikla vinnu. Af nefndum félagsins hefur Útgáfunefnd vegna Manntals 1910 án
efa unnið mest starf: yfir 400( vinnustundir hafa verið lagðar fram, í sjálfboðaliðavinnu eins og allt
annað starf í þágu félagsins. Ég vil færa frú Hólmfríði Gísladóttur sérstakar þakkir, en hún og maður
hennar Eggert Thorberg Kjartansson hafa verið burðarásinn í þessum virka starfshópi. Um starf
nefndarinnar og Manntalið 1910 sérstaklega er fjallað á næstu blaðsíðum (þ.e. greinargerðir, sem
fylgdu umsókn um styrk úr Vísindasjóði). Að lokum færi ég stjómarmönnum kærar þakkir fyrir
samstarfið. Kristínu Guðmundsdóttur ritara þakka ég vel unnin störf, svo og Önnu Guðrúnu og
Sigurgeiri, sem sitja í varastjórn félagsins og hafa tekið fullan þátt í störfum stjómar. - JVJ.
Hver er framtíð Fréttabréfs Ættfræðifélagsins?
í rúmt ár hefur Fréttabréf Ættfræðifélagsins verið unnið á tölvu og prentað á leysi-
prentara með ágætum prentgæðum. Ég bauðst til þessa verks af sjálfsdáðum og hef
ekki séð eftir því, enda hef ég lært ýmislegt af þessu. En slíkt sjálfboðastarf hefur
lagzt ofan á aðra vinnu í þágu félagsins, og ég hafði ekki hugsað mér ritstjómina til
frambúðar. Nú hverf ég að öðmm verkefnum, og þá blasir við spumingin: Verður
eitthvert framhald á útgáfunni í sambærilegri mynd? Viljum við færa okkur aftur á
bak á vélritunarstigið? Eða viljum við borga sérstaklega fyrir tölvusetningu (til
viðbótar við kostnað af offsetfjölritun, sem er um 14-15.000 kr. á hvert tölublað, og
15-16.000 kr. í burðargjöld og umslög)? Eða fást einhverjir til að vinna þetta í
sjálfboðavinnu? Ég hef unnið fréttabréfið á Macintosh-SE-tölvu, en félagið á enga
slíka. Ég mun afhenda félaginu tölvudisk með öllum "skjölum", sem félagið varða
(bæði fréttabréfið, stjómarfundi, bréfaskrif o.fl.); á gmndvelli þeirra er auðvelt að
halda áfram hliðstæðri vinnu. En hver býður sig fram til starfsins? Það er aðkallandi
að leysa úr þessu án tafar - ella gæti fréttabréfið í núverandi mynd liðið undir lok. Ég
hef áhyggjur af þessu og skora því á félagsmenn að koma undirbúnir með einhverja
lausn á þessu máli á fundunum 14. og 28. þessa mánaðar. - Jón Valur Jensson.