Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.01.1995, Blaðsíða 3
Guðjón Óskar Jónsson:
Jón Jónsson bryti
Ætt Og ævi
^igllllPllMlÍlillIllgll IIIII®IÍIIIIII
Manntal í Hrepphólasókn, Ámessýslu árið 1801
Mínna Hof
Jon Jonsson husbonde 69 3.ægt jordbmg og fiskerie
Helga Jonsdotter hans kone 49 1 .ægt.
Margret Jonsdott(er) hans 30 ugivt
Gunnhilldur Jonsd: böm 14 -
Jon Jonsson dissé 12 -
Þorun Jonsdott(er) alle 9 -
Þora Jonsdottir sammen 7 -
Oddur Amason tienestekarl 50 -
Jón Jónsson, sem hér um ræðir,
var um skeið bryti Skálholts-
staðar.
Þótt hann léti af því starfi,
var hann jafnan nefndur Jón bryti.
Jón flutti úr Biskupstungum að
Háholti Gnúpverjahreppi árið 1791.
Sambýlismaður Jóns frá 1795 var
Gottsvin Jónsson f. 1767 d. 1844.
Hann var faðir Sigurðar f. 1798 d.
1834, sem var einn Kambsránsmanna
(Kambsrán var framið 9. febr. 1827).
Gottsvin Jónsson hafði á sér mis-
jafnt orð. Kemur hann mjög við
Kambsránssögu.
Svo segir þar:
"Allvel gekk sambýli þeirra Jóns
og Gottsvins í fyrstu, enda sveigði
Jón undan honum í öllu, er hann
þóttist mega".
En sambýlið fór versnandi. í
Kambsránssögu segirm.a. frá því, að
Gottsvin hafði næstum orðið að bana
Gísla, syni Jóns bryta.
Enn segir þar:
"Eftir þetta þótti Jóni bryta sér
eigi vœrtísambýli við Gottsvin; þóttist
ofgamall og böm sín ofung til þess,
að sér væri unnt að halda hlut sínum
fyrir Gottsvini. Gísli, sonJónsvarþá
líka dáinn, en Rósa dóttir hans gift".
Gísli og Rósa voru börn Jóns af 2.
hjónabandi.
Það er mishermi í Kambsránssögu,
að Gísli, sonur Jóns, væri þá dáinn
(fyrir 1798).
Gísli lifði föðursinn. Verður hans
getið síðar.
Jón bryti fékk nú ábúð á Minna-
Hofi.Hannfluttistþangaðvorið 1798
og bjó þar upp frá því.
Jón Jónsson bryti er mikill ætt-
faðir, en uppruni hans hefurekki verið
kunnur, að ætla má.
Það þekkja allir, sem ættfræði
stunda, að oft er erfitt að skilgreina
þá, sem heita Jón Jónsson.
Jón bryti bjó um árabil að Hömr-
um í Grímsnesi.
Sóknarmanntal að Hömrum
1767:
Jón Jónsson húsbóndi Málfríður Eyjólfsdóttir, 37 ára
kona hans 30 ára
Bjarni, sonur þeirra 2 ára
Rósa, dóttir þeirra Þórdís Þórðardóttir 1 árs
stjúpdóttir húsb. 13 ára
S vanhildur Jónsdóttir
móðir húsbónda 65 ára
Jórunn Jónsdóttir
systir húsbónda 33 ára
Vera Svanhildar Jónsdóttur á
heimili sonar síns er lykill að ætt-
færslu Jóns bryta. Maður Svanhildar
og faðir Jóns var Jón Jónsson f. 1702
d. 1762 bóndi Steindórsstöðum og
víðarReykholtsdal Borgarf., en síðast
Rauðsgili Hálsasveit (Borgf. ævi-
skrár 6 bls. 23).
I Borgf. æviskrám eru nefnd þessi
börn Jóns og Svanhildar:
Valgerðurf. 1733,Jórunnf. 1734,
Einar f. 1736 bóndi Rauðsgili, Jón f.
1746.
Finnur Jónsson f. 1704 d. 1789
biskup í Skálholti 1754-1785 hélt
Reykholtsprestakall 1732-1754. Hann
var því sóknarprestur fjölskyldu Jóns
og Svanhildar. Finnur hefur haft það
álit á Jóni eldra á Rauðsgili, að hann
yrði farsæll í störfum. Jón er því ráðinn
bryti að Skálholtsstað.
Rétt er að benda á það, að Jón
Jónsson f. 1652 d. 1727 faðir Svan-
hildar á Rauðsgili var um skeið í
þjónustu Skálholtsstaðar. Svo segir í
Borgf. æv. 6 bls. 12:
"A yngri árum var hann starfs-
maður í Skálholti, og um skeið var
hann þaraðstoðarbryti eða verkstjóri.
Var álitsmaður og efnaður."
Jón bryti bjó á þessum jörðum í
Grímsnesi: Gelti - 1762 -, Hömrum
1766-1772, Sveinavatni 1772-1779,
Stærribæ 1779-1781.
S vanhildur Jónsdóttir dó á heimili
sonar síns Sveinavatni 1. júní 1775.
Jórunn, systir Jóns bryta, giftist
20. sept. 1771 Páli Bergssyni f. 1737.
Hann kom í Mosfellssókn árið 1762.
Bam þeirra var Bergur f. 17. maí
1771 Hömrum, d. 27. okt. 1784.
Jórunn var í Stærribæ 1780. Páll
var í Kringlu sama ár.
Jón Jónsson yngri frá Rauðsgili
var á heimili bróður síns Hömrum
1768-1771.
Jón bryti var þríkvæntur, eins og
segir í upphafi greinarinnar.
Fyrsta kona hans var Þórunn
Skaftadóttir f. 1720 ekkja að Gelti
(Kaupmáli dags. 5. okt. 1759). Þór-
unn var hjá vandalausum Miðengi
Grímsnesi 1729.Ætthennarerókunn.
Fyrri maður Þórunnar var Þórður
f. 1684 bóndi Gelti - 1729-1758 -
Ásgrímsson bónda Galtalæk Bisk.
1703 Jónssonar.
Þórunn var seinni kona Þórðar.
Fyrri kona hans var Sesselja f. 1691
Þorkelsdóttir bónda Ormsstöðum
Grímsnesi 1703 Þórðarsonar.
Barn Þórðar og Þórunnar var
Þórdís f. 1754, sem var á heimili
stjúpföðursínsHömrum 1767enekki
lengur.
3