Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Blaðsíða 6

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Blaðsíða 6
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2008 Skáld-Rósa dó og var jarðsett á Efra-Núpi í Miðfirði. í áratugi sátu konurnar oft og prjónuðu á leiði hennar og varðveittu þannig staðsetningu þess. Arið 1965,110 árum eftir dauða Rósu, reistu húnvetnskar konur bautastein á leiði hennar. (Ljósmynd Bjargþór G. Kolbeins). fæddist liðlega hálfu ári eftir hörmulegt dauðaslys hennar í jarðskriðunni í Löngu-Hlíð. En ég sleppi því að sinni. Hún var látin heita Rósa eins og helgikvæði Sig- urðar blinds. Forfeður hennar, sem hér á undan voru nefndir, voru allir forfeður móður hennar. Halldór Sveinsson, bóndi í Fornhaga 1703, var þar fyrstur vegna þess að hann var einnig langafi Guðmundar bónda föður Rósu. Foreldramir voru þannig þre- menningar út af honum. Um foreldra Halldórs og eiginkonu veit ég ekki neitt. Guðmundur sonur hans, bóndi í Hátúni í Hörgárdal, var kvæntur Margréti Jónsdóttur og þau voru foreldrar Sigríðar Guðmunds- dóttur húsmóður á Syðri-Reistará. Nafni hennar kom Guðmundur sonur hennar upp. Sigríður á Asgerðar- stöðum f. 1790 elst af börnum hjónanna, sem aldri náði, bar það þau 33 ár sem hún lifði. Fyrri maður Sigríðar, föðurömmu Rósu, var fað- ir Guðmundar, Rögnvaldur Arnfinnsson á Reistará. Hann varð skammlífur og fórst í bátstapa við Hrís- ey 19. nóv. 1760, haustið sem Guðmundur fæddist. Rögnvaldi og Sigríði fæddust 2 börn. Sigríður giftist aftur eftir drukknun Rögnvald- ar Snorra Einarssyni. Þau bjuggu á Reistará. Dóttir hennar, eldri en Guðmundur, hét Ingibjörg Rögn- valdsdóttir eins og móðir Rögnvaldar hét. Snorri varð ekki langlífur. Hann fórst í sjóferð á Sýrdalsvogi und- ir Hvanndalabjargi 8. sept. 1783. Snorri átti bróður, sem Hallgrímur hét, sem einnig bjó á Reistará. Hann var faðir sr. Þorláks á Svalbarði, sem Rósa fór í vist til er hún stóð á tvítugu. For- eldrar Rögnvaldar voru Arnfinnur Jónsson bóndi á Þrastarhóli og kona hans Ingibjörg Rögnvaldsdóttir. Foreldrar Arnfinns voru Jón Arnfinnsson, sem bjó í Löngu-Hlíð 1703 og Ingibjörg Jónsdóttir. Guðrún systir Jóns, var einnig búsett í Löngu-Hlíð 1703 og átti dótturina Rósu Jónsdóttur f. 1689. Foreldrar Ingibjargar á Þrastarhóli voru Rögnvald- ur Jónsson, Rögnvaldssonar, Þorgeirssonar, Jónsson- ar, sem sagður var fylgisveinn Jóns biskups Arasonar og Guðrún Jónsdóttir. Þau bjuggu á Yxnahóli. Þannig lýk ég að nefna 31 persónu sem eru í næstu framættarliðum Rósu í 5 liði að henni meðtaldri, sem virðast hafa að mestu framfleitt sér með bústörfum í Hörgárdal og næsta nágrenni hans. Rósa er alfarið af eyfirsku bergi brotin má segja, þótt ættrakning henn- ar liggi vísast vítt um landið ef lengra væri rakið. En það skiptir í tvær áttir með niðjana. Ásgerðarstaðahjónunum fæddust eftirtalin börn: Jónas f. 1785, sem dó ársgamall úr bólusótt, Snorri f. 1786, sem dó ungbarn, Jón f. 1787, sem lifði til vors 1796, mesti efnispiltur, sem líklega veiktist af meltingarsjúkdómi og dó 8. maí, vorið sem Rósa var á fyrsta árinu, Guðmundur f. 1788, sem ekkert er skráð um nema fæðingin, Guðmundur f. 1789, sem er sömuleiðis aðeins nefndur vegna fæðingar og skírnar, Sigríður f. 1790, sem átti tvo syni en dó af barnsburð- arsjúkleika er hún átti andvana dóttur í júnílok 1823. Þeir juku kyn sitt í Húnavatnssýslu. Næsta bam var Amþóra f. 1792, sem andaðist 9 vikna, Snorri f. 1794, sem varð mektarbóndi í Stóra- Brekku, kvæntur Guðrúnu Gunnarsdóttur ljósmóður. Þeirra niðjar urðu Eyfirðingar. Rósa f. 1795 átti börn sín í Húnavatnssýslu. Þau juku kyn sitt í fleiri hémð- um landsins. Guðrún f. 1797 giftist Eyfirðingi, Ólafi Ólafssyni. Þau bjuggu í Skjaldarvík. Þeirra niðjar voru nyrðra. Enn áttu þau Ásgerðarstaðahjónin soninn Jón f. 1799, sem andast ungbam. Jón f. 1801 varð svo 12. bam þeirra. Hann kvæntist ungur Margréti Jónsdótt- ur Þorlákssonar prests á Bægisá og bjó með henni á Krakavöllum í Fljótum í Skagafirði. Elsti sonur þeirra sr. Jón á Barði er ættfaðir Norð- mannsættarinnar. Svo sérkennilega vill til, að tengda- synir Guðmundar Rögnvaldssonar heita Ólafur Jóns- son, maður Sigríðar, Ólafur Ásmundsson, maður Rósu og Ólafur Ólafsson, maður Guðrúnar. Þessir þrír Ólafar virðast allir vera bændur í betri bænda röð. Skilst ég svo við þessa grein ættfræðinnar og hverf að nöfnum á börnum Rósu. Elst barna hennar er Pálína f. 3. ágúst 1818 á Haukagili, svo er Guðrún f. 30. júlí 1819 einnig á Haukagili. Guðmundur faðir Rósu er þá kominn til http://www.ætt.is 6 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.