Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Blaðsíða 22
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2008
Ný stjórn Ættfræðifélagsins: F.v. Guðmar Magnússon, Olgeir Möller, Anna Guðrún Hafstcinsdóttir, Hörður Einarsson,
Olafur Pálsson og Kristinn Kristjánsson.
Fréttabréfsins undanfarin ár hefur verið Guðfinna
Ragnarsdóttir, en ritnefndina skipa, auk Guðfinnu,
Olafur H. Oskarsson og Ragnar Böðvarsson. Ábyrgð-
armaður er formaður félagsins, Eiríkur Þ. Einarsson.
Unnið er að skönnun fréttabréfsins og væntanlega
fara elstu tölublöðin á heimasíðu félagsins nú þegar
hún hefur verið endurnýjuð.
Manntöl seldust vel á bókamarkaði sl. vetur.
Áfram verða manntöl boðin til sölu á bókamarkaðn-
um sem hófst einmitt í morgun.
Opið hús er á skrifstofu félagsins í Ármúla 19, 2.
hæð, einu sinni í viku, á miðvikudögum, yfir vetrar-
tímann, frá byrjun september og fram í maí. Á opið
hús koma um 8-10 manns á hverjum miðvikudegi.
Þar eru rædd ýmis mál og menn líta í bækur í bóka-
safni félagsins. Stjórnarmenn og aðrir félagsmenn
hafa skipst á að sjá um opið hús, þó hefur Olafur
Pálsson reynst einna drýgstur í því starfi. Vil ég
þakka honum þá elju sem hann sýnir félaginu.
Ættfræðifélagið á marga hauka í horni sem hafa
félagið jafnan í huga og færa því bókagjafir. Skúli
Skúlason ættfræðingur ánafnaði félaginu ættfræði-
bókasafn sitt, sem reyndar hefur ekki borist okkur
enn. Það sýnir góðvild Skúla í garð félagsins. Hann
var síðast gestur á félagsfundi í nóvember sl., stuttu
áður en hann lagðist inn á spítala þaðan sem hann átti
ekki afturkvæmt. Hann lést þann 5. febrúar sl.
Útgáfustarf Ættfræðifélagsins
Þótt ekki hafi komið út neitt af manntölum á undan-
förnum árum erum við ekki alveg af baki dottin. Enn
Ættfræðifélagið á Bókamarkaðnum.
er unnið að undirbúningi að útgáfu næstu binda af
manntali 1910 í samvinnu við Erfðafræðinefnd. Ætl-
unin er að vinna ritið á svipaðan hátt og fyrri bindi
en þau koma ekki endilega út í réttri bindaröð, heldur
eftir því hvernig verkið vinnst. Getur því 15. bindi
komið á undan 10. bindi ef verkið vinnst þannig.
Áætlað er að Manntalið 1910 verði alls 16-17 bindi ef
ákveðið verður að gefa það út í prentuðu formi, sem
við stefnum að, en það getur líka verið að það verði
einungis gefið út sem tölvudiskur eða sett á Internet-
ið. Það fer algerlega eftir kostnaði og fjármögnun á
verkinu og hvernig unnt er að vinna það á sem hag-
kvæmastan hátt.
Nú þegar ég læt af störfum sem formaður félags-
ins til síðastliðinna fjögurra ára langar mig að þakka
stjórnarmönnum og félögum öllum samstarfið á þess-
um fjórum árum. Það hefur verið mjög gefandi að
kynnast öllu þessu fólki sem hefur ættfræði að áhuga-
máli. Margir segja að þetta sé hnýsni í einkalíf fólks.
Við kynni mín af því fólki sem finnst gaman að ætt-
fræðigrúski hef ég ekki orðið var við sérstakan áhuga
á einkalífi fólks að öðru leyti. Þetta er skemmtilegt
tómstundagaman sem gefur manni mikið. Eg hef
ekki hugsað mér að hverfa algerlega af sjónarsviði
Ættfræðifélagsins og kem væntanlega til með að láta
sjá mig á félagsfundum við og við.
Að lokum vil ég bjóða það stjórnarfólk sem kjörið
verður til stjórnarstarfa þegar þar að kemur í dag-
skránni hér á eftir velkomið til starfa.
***
Nýkjörinn formaður þakkaði Eiríki Þ. Einarssyni,
fráfarandi formanni, vel unnin störf á undanförnum
árum og færði honum blómvönd.
Ný stjórn Ættfræðifélagsins
Anna Guðrún Hafsteinsdóttir formaður
Olafur Pálsson varaformaður
Olgeir Möller gjaldkeri
Hörður Einarsson meðstjórnandi
Guðmar Magnússon varastjórn
Valdimar Már Pétursson varastjórn
http://wvvw.ætt.is
22
aett@aett.is