Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Blaðsíða 21

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Blaðsíða 21
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2008 Ættfræðifélagið aðalfundur fyrir árið 2007 Skýrsla stjórnar: Eftir síðasta aðalfundi var stjórn Ættfræðifélagsins þannig skipuð: Formaður: Eiríkur Þ. Einarsson, Varaformaður: Hörður Einarsson, Ritari: Kristinn Kristjánsson, Gjaldkeri: Olgeir Möller Meðstjórnandi: Anna Guðrún Hafsteinsdóttir I varastjórn voru: Olafur Pálsson og Valdimar Már Pétursson. Stjómin hélt 9 bókaða fundi á árinu. Eins og gengur í félögum þá koma stjómarmenn og fara. Að þessu sinni eru það þau Anna Guðrún Hafsteinsdóttir og Hörður Einarsson sem eiga skv. lögum að ganga úr stjórn félagsins og Ólafur Pálsson úr varastjórn, en öll voru þau kosinn er til tveggja ára. Endurskoðendur félagsins eru Guðjón Óskar Jónsson og Agúst Jónatansson og til vara Jóhannes Kolbeinsson.Eg vil þakka þeim öllum frábær störf á undanförnum árum, en það sýnir áhuga þeirra á störf- um Ættfræðifélagsins að þau skuli öll gefa gefa kost á sér til áframhaldandi starfa. Skuldlausir félagsmenn um síðustu áramót voru um 500, heiðursfélagar eru 9 og erlendir félagar 6. Nokkrir nýir félagar bættust í hópinn á árinu og alltaf látast einhverjir í svo stóru og gömlu félagi sem Ætt- fræðifélagið er. Þeir sem létust á árinu 2007 voru Anna Bjarnadóttir, Baldvin Halldórsson, Eyjólfur R Eyjólfsson, Gróa Jóhanna Salvarsdóttir, Óskar B Bjamason, Ragnheiður Ásmundsdóttir og Kristján R V Þórarinsson. Vil ég biðja fundarmenn um að rísa úr sætum og minnast þannig þeirra látnu. - Takk fyrir. Fjárhagur félagsins stendur nokkuð styrkum stoð- um. Hér á eftir gerir gjaldkeri grein fyrir reikningum Á skjaladaginn 10. nóvember 2007. Kristinn Kristjáns- son kynnti félagið. félagsins. Stærsti útgjaldaliður er húsaleiga sem fer hækkandi og verður það væntanlega helsta starf næstu stjórnar að finna lausn á húsnæðismálum. Félagsfundir voru haldnir mánaðarlega yfir vetr- armánuðina. Meðal fyrirlesara voru Gunnar Marel Hinriksson sagnfræðingur, Árni Indriðason mennta- skólakennari, Brynjar Halldórsson sem sér um útgáfu á Ættum Þingeyinga og Guðný Hallgrímsdóttir sagn- fræðingur. Á félagsfundi mættu að jafnaði 15-30 manns og voru fundir haldnir í þessum fundarsal hér í Þjóðskjalasafninu. Við þökkum safninu kærlega fyrir gott samstarf, en við höfum ekki þurft að greiða fyrir afnot af salnum. Kristinn Kristjánsson hefur séð um veitingar á flestum félagsfundum. Er honum hér með þökkuð frábær störf. Þann 10. nóvember var haldinn skjaladagur hér í Þjóðskjalasafninu. Yfirskrift dagsins var Mannlíf í skjölum. Kristinn Kristjánsson hafði veg og vanda af okkar þátttöku í deginum. Á árinu voru gefin út þrjú tölublöð af Frétta- bréfi Ættfræðifélagsins með fjölbreyttu efni. Ritstjóri Anna Guðrún Hafsteinsdóttir sem kosin var formaður Ættfræðifélagsins á síðasta aðalfundi er fædd í Reykjavík 18. janúar 1945. Anna Guðrún vinnur hjá Erfðafræðinefnd. Hún er dóttir hjónanna Jakobínu Sigurveigar Pétursdóttur og Hafsteins Eyvindar Gíslasonar. Jakobína Sigurveig var um tíma ritari Ættfræðifélagsins. Gísli Þórðarson föðurafi Önnu Guðrúnar er ættaður frá Rauðasandi. Þórður Þorsteinsson faðir hans var klemmusmiður og bjó m.a í Hafnarfirði. Unr hann var ort: Fyrrum Þórður frœgðum krók fiskinn dró úr víði. Hafði vestfirzkt tal - og tók til við klemmusmíði. Barnsmóðir Gísla var Halldóra Jóhanna Sveinbjörnsdóttir í Reykjavík. Stjúpfaðir Haf- steins var Pétur Ingjaldsson, skipstjóri frá Lamba- stöðum á Seltjarnamesi. Foreldrar Jakobínu voru Pétur Zopaníasson ættfræðingur f. í Goðdöl- um í Skagafirði og einn af stofnendum Ætt- fræðifélagsins og Guðrún Jónsdóttir kona hans frá Ásmundarstöðum á Melrakkasléttu. Anna Guðrún hefur verið í stjórn Ættfræðifélagsins með hléum á annan áratug. Eiginmaður Önnu Guðrúnar er Grétar Guðni Guðmundsson frá Vestmannaeyjum. Þau eiga þrjú börn. http://wvvw.ætt.is 21 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.