Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Blaðsíða 17

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Blaðsíða 17
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2008 safna upplýsingum í gagnabankann sem ég byrjaði að safna í fyrir um fjörutíu árum, að vísu óskipulega í fyrstu, en frá 1995 hefur þetta tekið mestan tíma hjá mér. Þegar ég svo byrja á nýrri bók, þá byggi ég á margra áratuga grunni, en þegar ég tel handritið tilbúið, búta ég það í sundur og sendi þeim sem nefndir eru í handritinu próförk, sem ég bið um að verði yfirfarin og óska eftir myndum. Frímerkt umslag fylgir öllum bréfum. Undirtektir hafa í langflestum tilfellum ver- ið góðar, og oft alveg frábærar. Loks, áður en ég sendi handritið til prentunar sendi ég sömu aðilum leiðrétta próförk, bæði til að viðkomandi sæi hvort athugasemdir hafi komist til skila, og eins gæti eitt- hvað hafa breyst frá fyrri próförk. Myndir tel ég mjög mikilvægar og hef stefnt að því að fá myndir af um 1000 einstaklingum í hverja bók. Langflestar hafa komið frá einstaklingum, en einnig hef ég notið myndasafna bæði á Fléraðsskjalasafninu á Húsavík og Byggðasafninu á Kópaskeri. Nóg efni eftir Héraðsnefnd stóð fyrir útgáfunni frá og með 5. bindi, og greiddi prentunarkostnað og undirrrituðum styrk og sá ég þá um annan kostnað. Þegar kom að 12. bindi tjáði Héraðsnefnd mér að vegna fjárhagsástæðna treysti nefndin sér ekki til að styrkja mig, a.m.k. tíma- bundið. Tólfta bindið var þá nánast tilbúið, og varð úr að ég gaf það út á eigin kostnað, og hef gert það við næstu bindi. Indriði Indriðason safnaði saman skrifum föður síns, skráði fólk eftir ættum og stóð fyrir útgáfu fyrstu fimm binda verksins. Indriði Þórkelsson frá Y tra- Fjalli í Aðaldal afritaði í hjáverkum kirkjubækur, tók saman ábúendatöl og forðaði ótal mörgu frá gleymsku. Héraðsnefnd taldi að það væri halli á útgáfunni hjá þeim, og hjá mér hef ég getað selt upp í kostnað, en lítið meira. Fimmtánda bindið, og það fjórða sem ég hef gefið út á eigin ábyrgð er nú nýkomið út, en tíminn verður að leiða í ljós hvað hægt verður að gera, en nóg efni er í nokkur bindi. Bækurnar hafa langmest verið seldar beint frá mér, og sérstökum umboðsmönnum, en einnig verið til sölu í nokkrum bókabúðum. Hægt er að hafa samband við mig í síma 465-2240 ef áhugi er á því að kaupa bækurnar, en félagar í Ættfræðifélaginu hafa alltaf fengið einhvern afslátt. Fyrirspurn Rodger Shaver spyr um langafa sinn Halldór Stefán Halldórsson sem giftist Jórunni Christólínu Jónsdóttur 19. júní 1883 í Miklaholti Hnappadalssýslu. Þau fluttu, segir hann, stuttu seinna til Winnipeg í Manitobafylki. Halldór Stefán mun vera fæddur á Islandi 30. ágúst 1861. Meira kom ekki fram í fyrirspurninni en Rodger hefur áhuga á að frétta meira um þessa forfeður sína. Ritstjórinn fann þau hjónin í Vesturfaraskrá Júníusar Kristinssonar bls. 162, en þar er Halldór Kr. sagður Kristjánsson. Þau fara frá Hjarðarfelli í Miklaholtshreppi árið 1883 þá er hann 22 ára og hún 19 ára. Frá sama bæ fara lfka Jón Jónsson og kona hans Vilborg Guðmundsdóttir. Eftir nokkra leit í Vestur-íslenskum æviskrám 3. bindi fannst eftirfarandi á bls 361 og 362: Jórunn Kristólína, sem í Vesturfaraskrá er sögð vinnukona, er í reynd dóttir hjónanna Jóns Jónssonar og Vilborgar Guðmundsdóttur. Jón, f. 23. september 1838 d. í Winnipeg 26. janúar 1908 bjó um 20 ár á Hjarðafelli áður en hann fór vestur 1883. Hann er sagður trésmíðameistari. Bróðir hans var Jón Vestmann bóndi í Álftavatnsbyggð. Foreldrar hans voru Jón Sigurðsson bóndi á Þverá í Eyjahreppi og Þórunn Árnadóttir kona hans. Vilborg Guðmundsdóttir frá Miðhrauni, var fædd 17. september 1843, d. 28. mars 1909. Foreldrar Vilborgar Guðmundsdóttur voru samkvæmt mt 1845, vesturamt bls 59: Guðmundur Þórðarson bóndi í Gröf í Miklaholtssókn, f. 7. janúar 1809, dáinn 2. desember 1862 og kona hans Þóra Þórðardóttir f. 25. maí 1818, d. 5. apríl 1889. Börn Jóns og Vilborgar sem upp komust voru samkvæmt Vestur-íslenskum æviskrám 3. bindi, bls. 362: Guðjón Vilhjálmur, Jórunn Kristólína, hún er samkv. íslendingabók fædd 15. apríl 1864, Þórður, Kristján, Magnús, Kristinn, Valgerður, Sólborg og Alexander (Alex). Fjögur yngstu börnin fæðast vestra en Þóra, sem er eins árs í Vesturfaraskránni virðist hafa dáið ung. Hið sérkennilega nafn Kristólína er komið frá Kristólínu systur Vilborgar sem deyr á fyrsta ári árið 1860, þegar Vilborg er um 17 ár gömul. Mikill ættbogi sýnist mér vera frá tveim bræðrum Vilborgar Guðmundsdóttur, þeim Kristjáni, f. 1852, bónda í Straumfjarðartungu og Hjarðarfelli og Halldóri f. 1842, bónda á Fáskrúðarbakka og víðar. Þeir bræður voru þeir einu sinna systkina sem áttu afkomendur auk Vilborgar sem flytur út með öll sín börn. Ekki rakti ritstjóri þetta lengra en gott væri að fá nánari upplýsingar um foreldra Jóns Jónssonar, þau Jón Sigurðsson bónda á Þverá í Eyjahreppi og konu hans Þórunni Árnadóttur. Einnig væri gaman að heyra frá afkomendum þeirra bræðra Kristjáns og Halldórs. Nánari upplýsingar sendist til Fréttabréfsins og til gopherdal@aol.com eða til Rodger Shaver 3172 W. Deerfield Ct. Eagle, ID 83616. http://www.ætt.is 17 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.