Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Qupperneq 7
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2008
dóttur sinnar og er guðfaðir Guðrúnar. Næsta barn
Rósu er Sigríður f. 28. desember 1822 í Saurbæ, síð-
an er Rósant Berthold f. 22. mars 1824 á Lækjamóti,
næst er Þóranna Rósa f. 30. maí 1825 og yngst er
Súsanna f. 7. júlí 1826. Hún er skráð Natansdóttir í
kirkjubók og nær ekki aldri. Öll hin böm Rósu náðu
aldri og eiga afkomendur, sem eru í fleiri en einum
landsfjórðungi. Þannig lýk ég máli mínu um ýmsa
ættarþræði tengda Rósu.
Júlíusi Havsteen amtmanni f. 1839, sem fór 14 ára
í skóla í Reykjavík og sá hana, varð minnisstætt hve
glæsileg hún var og hafði orð á því við Einar Arnórs-
son. Hann sagði Bimi Karel Þórólfssyni frá aðdáun
Júlíusar og Björn sagði Guðrúnu Pálínu Helgadóttur
frá því. Hún ritfesti svo ummæli Júlíusar í bókinni
„Skáldkonur fyrri alda“ og einnig þau ummæli, sem
Sigurður Norðdal flutti henni og Eyjólfur Jóhannes-
son í Hvammi (1824 -1911) sagði honum. Eyjólfur
lét svo um mælt að Rósa væri með fallegustu konum
sem hann hefði séð um æfina.
Rósa andaðist eftir stutta legu 28. sept. 1855 á
Efra-Núpi í Núpsdal, V.-Hún. Veglegur legsteinn
merkir legstað hennar í kirkjugarðinum þar. Á stein-
inn er skráð áletrun sem dr. Kristján Eldjám, þá þjóð-
minjavörður og seinna forseti íslands, lagði til að þar
stæði. Áletrunin er eftirfarandi:
Rósa Guðmundsdóttir
skáldkona
frá Vatnsenda
Fædd 23. des. 1795
Dáin 28. sept. 1855
Steinn þessi var settur á leiði Vatnsenda-Rósu að
frumkvæði Kvennabandsins í Vestur-Húnavatnssýslu
1965.
Rósa Guðmundsdóttir, yfirsetukona og svo ljós-
móðir, bjó í Saurbæ í Vatnsdal, á Lækjamóti, Vatns-
enda, Jörfa og Gottorp í Víðidal og Vestur-Hópi,
síðan í Ólafsvík og Hafnarfirði, fjórmenningur við
sjálfa sig. Foreldrar hennar og forfeður í þrjá ættliði
taldir hér á eftir eru:
Faðir hennar: Guðmundur Rögnvaldsson, Ásgerðarstöðum og Fornhaga. Móðir hennar: Guðrún „ yngri“ Guðmundsdóttir kona Guðmundar Rögnvaldssonar.
Rögnvaldur Amfinnsson Reistará. Sigríður Guðmunds- dóttir kona Rögnvaldar. Guðmundur ívarsson Bási og Lönguhlíð. Arnþóra Ásmundsdóttir kona Guðmundar.
Amfmnur Jónsson Ingibjörg Rögnvalds- dóttir, hjón Þrastarhóli og Þúfnavöllum, foreldrar Rögnvaldar. Guðmundur Halldórs- son Margrét Jónsdóttir, hjón Hátúni Hörárdal, foreldrar Sigríðar. Ivar Bjömsson Þóra Halldórsdóttir, hjón í Lönguhlíð, foreldrar Guðmundar. Ásmundur Jónsson Þóra Sigvaldadóttir, hjón Æsust., Lækjarb., Stóru-brekku og Svíra, foreldrar Amþóru.
Guðmundur Rögn- valdsson er þremenn- ingur við konu sína. Halldór Sveinsson Fornhaga, bóndi þar 1703, faðir Guðmundar í Hátúni og Þóru í Lönguhlíð. Kona hans er óþekkt. Þau eru langa- langafahjón Rósu. Guðrún Guðmunds- dóttir er þremenningur við mann sinn.
Ættfræðifélagið vantar
húsnæði á sanngjörnu verði
Ættfræðifélagið óskar hér með eftir húsnæði til
leigu, helst nokkuð miðsvæðis, á sanngjörnu verði.
Húsaleigan á núverandi stað er orðin félaginu
ansi erfiður baggi og því nauðsynlegt að svipast
um eftir öðru og ódýrara húsnæði. Aðalherbergið
þyrfti að vera 20-30 m2 til þess að rúma bókasafnið
og fundaraðstöðuna og helst þarf að fylgja með
geymsla fyrir bókalager félagsins. Stjórnin skorar
á alla félaga að hafa augun opin og láta stjórnina
vita ef þeir vita um eða finna góða aðstöðu fyrir
félagið.
Ættfræðifélagið
vantar tölvu
Ættfræðifélagið óskarhér með eftirgóðri borðtölvu
fyrir skrifstofuna. Hún má helst ekki vera eldri en
tveggja ára. Núverandi tölvukostur er löngu úr
sér genginn og þörf á endurbótum. Þeir sem vilja
leggja okkur lið hafi samband við stjórnina eða
ritstjóra.
Félagar!
Munið að senda okkur línu. Allur ættarfróðleikur
og umfjöllun um ættfræði er velkominn.
http://www.ætt.is
7
aett@aett.is