Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Síða 8

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.03.2008, Síða 8
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í mars 2008 Gunnar Marel Hinriksson: Ætt manntalsins 1703 Erindi flutt á félagsfundi Ættfræðifélagsins 29. nóvember 2007 Manntalið 1703 er ómetanleg heimild fyrir íslenska œttfrœði. En hvernig kom til að mann- talið var tekið? Friðrik IV. konungur fól Árna Magnússyni og Páli Vídalín að gera jarðabók með erindisbréfi frá 22. maí 1702. Um bókina fjalla fyrstu sex liðirnir af 30 í bréfinu.1 Annað sem þeir gerðu mætti kalla aukagetu við stóra verkefnið; fyrst þeir voru lagðir af stað á ann- að borð, hví ekki nýta ferðina? Þar á meðal má telja manntalið. Sumt sem þeir gerðu var ekki fyrirskipað í erindisbréfinu, t.d. kvikfjártalið sem gert var manntalsárið 1703, en það hefur Árni hugsað sem gagnlega viðbót við allsherjar úttekt sína á efnahagsástandi landsins. Framætt manntalsins 1703 Fullyrða má að ef ekki hefði verið talin þörf fyrir nýja jarðabók hefði manntal ekki verið tekið á Islandi við upphaf 18. aldar. Venjulega skýringin á því að ráðist var í í þetta verkefni er eftirfarandi: Eftir langan harðindakafla við lok 17. aldar var ástandið á Islandi orðið þannig að talin var þörf á aðstoð frá Danmörku. í því augna- miði var Lárus Gottrúp, danskur maður og klaust- urhaldari á Þingeyrum, sendur út með bónarbréf á konungsfund. Konungur tók bóninni vel og niður- staðan varð sú að gerð var jarðabók og manntal til að kanna ástand landsins.2 Þetta er allt gott og blessað, en meira býr að baki. Ef orðalag fyrsta liðar erindisbréfsins frá 1702 er skoðað, sést eitt athyglisvert: Som de hidindtil paa voris Rente Cammer værende og dennem til deris Effterretning nu tilstillede Jor- debpger icke udj saadan een Rigtighed sig befinder, som det sig velburde; Saa shall nu af dennem een general fuldkommen Jordebog ofver gandshe Land- et, være sig Voris egen beholden, Domkirckernis, saa vel som de andre Kirckernis, Skolemis, Bispemis, Præsternis og Proprietariemis Gods, vorde indrettet og det specialiter Gaard effter Gaard...3 Konungur vissi semsagt að þær jarðabækur sem voru í Rentukammerinu voru ekki eins réttar og þær áttu að vera. A réttleika jarðabókanna hafði einungis einu sinni reynt áður. Það var á árunum 1679-1692 þegar innheimta stríðshjálparskatts stóð yfir. Skánarstríðið orsökin Stríðshjálpina átti að senda til Danmerkur vegna Skánarstríðs Dana og Svía 1675-1679. Innheimtan gekk hins vegar hægt fyrir sig eins og ég mun koma nánar að síðar, en segja má að þetta mál hafi verið í deiglunni 10-20 árum áður en vinnan við jarðabók- ina hófst.4 Skatturinn var boðinn með konungsbréfi 31. maí 1679, um fjórum mánuðum fyrir lok stríðsins.5 Átti samkvæmt því hver landeigandi að greiða ákveðna upphæð af jarðeign sinni og hver leiguliði að greiða ákveðna upphæð, helmingi lægri, af þeim löndum sem hann leigði. Einnig voru leigukúgildi skattlögð, en ekki eignarkúgildi. Stríðshjálpin var fyrsti eigna- skatturinn á íslandi sem byggði á fyrirframskráningu eigna. Tíundin var eini eignaskatturinn sem er eldri, og í raun elsti skattur á íslandi, fyrst lagður á 1096.6 En innheimta hennar byggði á munnlegu fram- tali skattgreiðenda, ekki fyrirframskráningu líkt og stríðshjálpin. Um tildrög þess að stríðshjálparskattsins var kraf- ist segir eftirfarandi annálagrein sr. Jóns Halldórsson- ar í Hítardal, úr Hirðstjóraannál: Undirrót til þessa tolls [þ.e. stríðshjálparskatts- ins] var sagt að verið hefði Marteinn nokkur, sem áður hefði verið Bielkens þénari, og komst svo hjá honum yfir jarðabókina als landsins. Og ept- ir það hann var úr hans þénustu, saman reiknaði hann hvað landið gæti úti látið, og síðan hafi hann angefið um þennan toll, til að koma sér sjálfum fram, hvað þá Bielken fékk að vita hafi honum fallið mjög illa, og sagt, að sá kompán mundi straffast af guði og fá makleg gjöld hér fyrir. Sá sami fékk strax eptir þunga sótt og dó.7 Báðust vægðar Megin ástæðan hlýtur þó að vera bágur fjárhagur danska ríkisins á stríðstímum, en það hefur verið dönskum yfirvöldum hjálp að hafa undir höndum yfírlit yfir hvers væri hægt að krefjast af landinu. En konungsbréfið frá 1679 var ekki lesið á Alþingi fyrr en 1680. Þá báðust íslendingar vægðar og sendu konungi bónarbréf (supplikatíu) þar uppá, sem svarað var með helmingslinun skattsins 1681.8 Áður hafði http://wwvv.ætt.is 8 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.