Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Page 10

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Page 10
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2010 Bergsstöðum í Svartárdal: „Smali sá var með presti er Jón hét Jón smali bjó síðan að Mörk í Laxárdal og var kallaður „harði bóndi“. Þótti hann ærið mislyndur en hverjum manni harðgjörvari.“ (Syrpa úr handritum Gísla Konráðssonar I, bls. 55). Jón og Guðríður áttu barn saman í lausaleik í Bergs- staðaprestakalli árið 1722 eða árið 1723, og var það fyrsta barneign beggja. (Skjalasafn Rentukammers Y-25; Dómab. Hún. 12. maí 1723). Hafa þau gengið í hjúskap nrjög fljótlega eftir það. Jón keypti Stóru-Mörk fyrir lausafé af Arna Þorsteinssyni bónda í Bólstaðarhlíð, og er eignarbréf hans fyrir jörðinni dagsett 16. september 1726. (Dómab. Hún. 9. maí 1733). Hann var þingvitni á manntalsþingum að Bólstaðarhlíð 30. apríl 1739, 28. • apríl 1740 og 4. maí 1746. Lausafjártíund Jóns á árunum 1733-1746 var á bilinu tólf til tuttugu hundruð. Skeggsstaðaætt er rakin frá hjónunum Jóni Jóns- syni og Björgu Jónsdóttur, sem bjuggu á Skeggs- stöðum í Svartárdal á átjándu öld. Fræðaþulurinn Björn Bjarnason á Brandsstöðum í Blöndudal gerir eftirfarandi grein fyrir þeim hjónum í ritgerð sinni um Skeggsstaðaætt: „Maður hét Jón Jónsson. Hann var eyfirskur að ætt. Hann bjó að Skeggsstöðum í Svart- árdal. Kona hans hét Björg Jónsdóttir. Móðir hennar var Þóra á Sneis Gunnarsdóttir, ættuð utan af Skaga, og er mikill ættleggur frá honum komin*. Þóra átti 19 böm, dó af barnsförum. Börnunum skipt upp. Björg fór að Eiríksstöðum. Jón var mikið guðrækinn maður, þolinn og þraut- góður, ráðvandur og reglumaður, en ei atgervismaður að afli né hagleik. Björg var fyrir flestum konum að skörungsskap, bústjórn, vinnu og þrifnaði, svo að í áliti var, að trauðlega fyndist í nálægum sveitum hennar líki. Á Skeggsstöðum fóru þau að búa árið 174[], kosta- lausri 30 hundraða jörð. Fljótt fjölgaði málnyta þeirra og bættist brauð með barni. Þau áttu 15 börn og 1 átti hann áður. Tvö af þeim dóu ung, en 14 urðu fullorðin. Má nú hér af sjá, hve mikil snilld hefir verið á búskap þeirra, að eignast fyrst nægan pening og halda honum fram hallærisbálkinn 1752-1759 og hvorum harð- indum þau liðu ei nauð. Sandfallið 1766 grandaði ei skepnum hýstum við nóg hey. Fjárfaraldrið kom þar, fyrir umhyggjusemi, seinast hér í sveit, þó að lokum allt fé væri skorið 1779. Og síðast brunafellisárið 1784 lifðu kýrnar og fé nokkurt og hross, svo með bestu búum var, þó slíkt mætti þakka fyrirhyggju systkin- anna, því Jón varð karlægur og dó um það leyti. Til merkis um siðavendni er það, að þá börn hans voru svo til aldurs komin, að gagn mættu hafa af kirkju- göngu, sat hann fram í kirkju hjá piltum sínum, til þess þeir stilltu fjör sitt og tækju eftir predikaninni, sem hann vanalega spurði þau úr. Hér með höfðu þau systk- in harðan vana, en þau voru fljótráð og mjög lífleg og þurftu nákvæmt tillit. Þau voru næm og skilningsgóð og vel lesandi, sem þá var lítt stundað, og urðu mikið guð- rækin, siðferðisgóð og hlýðin; fengu söngróm í besta lagi. Ekki var þeim fríðleiki lánaður, en fleiri af þeim sérlega lagleg á fæti, hér með kát og fjörug. Snemma voru þau vanin til verka og voru lagin og áköf þar við, urðu dygg og dugleg og fylgdi lán í öllum verkum. Þeir urðu góðir sjómenn og heppn- ir í ferðalagi. Þær afbragðs vinnukonur að vefnaði (sem þá var örðug kvennavinna) og annarri tóvinnu. Samt allt samvalið til heyskapar og peningshirðingar. Heilsu og þol höfðu þau framúrskarandi, sem sýnir það, að 12 urðu meir en 60 ára og ei nema 2 börn dóu ung, 1 drukknaði fullorðið, en einasta ein stúlka tap- aði heilsu og dó á tvítugsaldri.“ (Skeggsstaðaætt). Fræðaþulurinn Gísli Konráðsson í Flatey lýsir þeim Skeggsstaðahjónum á eftirfarandi hátt í Hún- vetningasögu: „Jón hét maður er bjó að Skeggsstöð- um í Svartárdal Jónsson, fátæks manns, kynjaður norðan úr Þingeyjarþingi að helst er til getið heldur en Vöðluþingi. Hafði hann norðan konrið og var nú eigi gamall. Þótti hann lítill fyrir sér og óauðugur að fé.... Björg systir Sigurðar á Brún, kona Jóns á Skeggsstöð- um, var og allrösk kona til hvarvetna og þótti mörgum hún vargefin." (Húnvetningasaga I, bls. 198-199). Ættatölur herma, að Jón hafi verið „smámenni, þó kartinn" (Ættatölub. Jóns Espólíns, 4758). Jón átti barn í lausaleik með Guðrúnu Olafsdóttur í Bergsstaðaprestakalli árið 1733 eða árið 1734, og var það fyrsta barneign beggja. (Skjalasafn Rentukamm- ers Y-42). Hefur hann gengið í hjúskap með Björgu nokkrum árum síðar. Jón lagði fram kæru á hendur Ormi Sigurðssyni, margdæmdum þjófi, á manntals- þingi að Bólstaðarhlíð árið 1757, fyrir að hafa aðfara- nótt hins 31. mars 1757 brotist inn um útidyr á bæ sínum, Skeggsstöðum, og síðan inn í búrið og stolið þar fimmtán mörkum smjörs, þremur fiskum, fimm leðurskæðum, þverbakspoka, saxi og sauðarskinni. (Dómab. Hún. 7. maí 1757). Var Ormur dæmdur til hengingar fyrir þessar tiltektir, og rná honurn þó hafa verið nokkur vorkunn, því hart var í ári. Lausafjár- tíund Jóns á árunum 1744-1782 var á bilinu fimm til tíu hundruð, en lausafjártíund Bjargar á árunum 1782-1791 var á bilinu ellefu til sextán hundruð. Páll Kolka læknir á Blönduósi segir um niðja Jóns á Skeggsstöðum: „Margir afkomendur hans voru búmenn miklir og fjáraflamenn, duglegir áróðurs- menn og framgjarnir, frekar ljósir yfirlitum, stór- skomir nokkuð og ekki fríðir.“ (Föðurtún, bls. 462). Magnús Björnsson á Syðra-Hóli gefur ættinni eft- irfarandi vitnisburð: „Það sem mest einkenndi fólk af Skeggsstaðaætt var mikið vinnuþrek, kappgirni og hneigð til fjársöfnunar. Létt lund og gamansemi kom þar víða fram, en fleiri voru þó fastlyndir og einhuga þar sem þeir beittu sér. Margir urðu þar efnamenn miklir" (Hrakhólar og höfuðból, bls. 45). Einn laukur Skeggsstaðaættar, Bjarni Jónasson fræðimaður í Blöndudalshólum í Blöndudal, lýs- ir frændgarðinum svo: „Margt er þar um dugmikla bændur og ýmsir þeirra ættmenna hafa komist til mannaforráða og gegnt ábyrgðarmiklum störfum í þjóðfélaginu. Á það má til dæmis benda að á Alþingi hafa setið um tveir tugir niðja þeirra Skeggsstaða- hjóna.“ (Húnavaka 1978, bls. 65-66). http://www.ætt.is 10 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.