Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Blaðsíða 14

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Blaðsíða 14
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2010 Guðfinna Ragnarsdóttir: Ert þú einn af þessum leiðinlegu Briemum? Ættmenn mínir af Briemætt eru taldir góðir verkfræðingar og lögfræðingar og samviskusamir embættismenn. Briemætt- in er líka vaidaætt og margir eru þar list- fengir eins og ættfaðirinn Gunnlaugur Briem. Þannig lýsti Sigurður Líndal laga- prófessor móðurætt sinni án þess þó að hafa gert á henni nákvæma úttekt. Sigurður Líndal prófessor er sonur Þórhildar Briem. Ég spurði hann einhvern tíma í útvarpsviðtali hvað sameinaði Briemana. Sigurður sagðist ekki hafa stúderað einkennin sjálfur en hefði meiri vitneskju um það sem aðrir hafa sagt. Hann undirstrikaði að einkennin væru ekki öll á einn veg. En vissulega væru þar ákveðin einkenni sem ekki væri hægt að líta fram hjá. Hann sagði að það hefði verið bent á að þar væru margir góðir verkfræðingar, stærðfræðingar og lögfræðingar. Þessu hafa menn tekið eftir, sagði Sig- urður. „Einnig eru innan ættarinnar margir embætt- ismenn, þeir hafa verið taldir góðir embættismenn, samviskusamir og nákvæmir í störfum.“ Gunnlaugur Briem (1773-1834) ættfaðir Briemsættar- innar. (Steinþrykksmynd eftir málverki) Skáld og listamenn Margir af niðjum Olafs Briem á Grund eru skáld, sagði Sigurður, og reyndar einnig afkomendur Jóhönnu Briem systur hans sem var gift séra Gunnari Gunnarssyni í Laufási. Þar má nefna Davíð Stef- ánsson og Valdimar Briem sálmaskáld sem báðir voru niðjar Ólafs og Hannes Hafstein sem var niðji Jóhönnu. Einnig eru í ættinni margir myndlistar- menn. Þar ber fyrst að nefna ættföðurinn Gunnlaug Briem sem var fyrst og fremst myndlistarmaður, lærði við Listaháskólann í Kaupmannahöfn í sjö ár og varð svo atvinnulaus listamaður í Napóleonsstyrj- öldunum. Hann fór þá að lesa lögfræði og endaði sem sýslumaður á Islandi og settur amtmaður. Aðrir lista- menn í ættinni eru m. a. þau Jóhann Briern, Valgerður Briem, sem kenndi teikningu í Austurbæjarskólanum og Gunnlaug Briem leturfræðingur. Fáir misheppnaðir Sigurður benti einnig á að margir Briemar hafa líka vissan áhuga á sagnfræði, þótt þeir séu ekki sagn- fræðingar. Helgi Briem sendiherra, var hagfræðingur að mennt, en tók doktorspróf í sagnfræði án þess að vera með sagnfræðipróf. Það er erfitt að benda á ein- hvern einn eiginleika, sagði Sigurður. Sigurður Guðmundsson skólameistari sagði einnig að góðar konur einkenndu ættina. Vissulega held ég að það sé rétt. Ég er að minnsta kosti sjálfur í kven- legg og hlýt að taka undir það. Annað sem ég hef tekið eftir er að ættmönnum mínum verður sæmilega mikið úr sínum hæfileikum. Hæfileikar þeirra nýtast þeim vel. Þeir eru yfirleitt reglusamir, það eru t.d. ekki margir sem hafa orðið áfengi að bráð. Ég heyrði móður mína oft segja að ekki væri mikið um óreglumenn eða misheppnaða menn í ættinni. Hvað neikvæðu hliðamar varðar þá eru þær áreiðanlega ýmsar. Lengi hefur verið sagt að Briemarar væru litlir tónlistarmenn, og syngju illa. Þó eru til tónlistarmenn í ættinni, en þeir hafa þá trú- lega fengið gáfuna úr öðrum ættum. Leiðinlegir Margir eru mjög málglaðir, fjörugir og hressir. Aðr- ir eru frekar þyrkingslegir, þykja ekki skemmtilegir, eru ekki alveg lausir við að vera svolítið drambsamir. Sumir eru heldur þurrlegir, að ég ekki segi leiðinlegir. Ekki alveg við alþýðuskap. Einhverju sinni þegar ég var eitthvað annars hugar http://www.ætt.is 14 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.