Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Side 15

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Side 15
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2010 í boði sagði ung frænka mín við mig: Ert þú einn af þessum leiðinlegu Briemum? Einhvern tíma var eftirfarandi vísa ort um Eggert Briem hæstaréttardómara: Hejitr þá ekkert œttarslím í Eggert þennan runnið? Helvíti er að heita Briem og hafa ekki til þess unnið. Þetta bendir nú til þess að höfundurinn hafi haft álit á ættinni. Valdaætt Það verður líka að segjast eins og er að Briemættin er talin til valdaætta, mjög margir af ættinni hafa gegnt valdastöðum og verið áhrifamenn í íslensku þjóð- félagi. Margir áhrifamiklir valdamenn hafa einnig tengst ættinni gegnum hjúskap, þá trúlega reynt að giftast jafngildum maka. En, undirstrikaði Sigurður, þessi samantekt um Briemættina byggir eins og áður sagði ekki á nein- um rannsóknum af minni hálfu, heldur hef ég tínt til ýmislegt sem um ættina er sagt. -E. CvA.VJDF.PvV. OPOKVEV tX 's'P OVV.Kl: rOTAMOVVAWTA iCCT OOVQVV ETV QAVlCvnu Askja eftir Gunnlaug Briem. Gunnlaugur stundaði nám við listaháskólann í Kaupmannahöfn þótt ævistarf hans væri innan lögfræðinnar, en hann var sýslumað- ur og settur amtmaður. Margir afkomendur hans hafa erft listagáfuna og listhneigðina, má þar nefna Jóhann Briem listmálara. Örfáir gripir hafa varðveist sem eign- aðir eru Gunnlaugi Briem, m.a. þessi askja frá árinu 1803 sem talið er að hann hafi skorið út og gefið sr. Ein- ari Guðbrandssyni bróður sínum í brúðargjöf. Það er nú þannig, sagði Sigurður, að stundum liggur það orð á að ættfræðin ýti undir ættardramb og jafnvel hroka. En ég held að það sé gott fólk í eigin- lega öllum ættum. Það er dálítið misjafnt hvar menn hafa haslað sér völl. Það er ekkert endilega að emb- ættismannaætt eða listamannaætt sé eitthvað betri en athafnamannaætt eða gild bændaætt, allt eru þetta nauðsynlegir þættir í þjóðlífinu. Fyrirspurn Anna Vigfúsdóttir Gaman væri að vita um börnin hennar Önnu og Hjalta Magnússonar. Jón Trausti segir að þau hafi verið átta. Anna var dóttir Vigfúsar Erlendssonar lög- manns og konu hans Guðrúnar Pálsdóttur frá Skarði á Skarðströnd, Dal. Vigfús bjó á Hlíðarenda í Fljótshlíð og andaðist 1521 í utanför. Anna hefur verið fædd um eða eftir 1500, sennilega á Hlíðarenda. Hún bjó fyrst á Stóruborg, síðar á Teigi í Fljótshlíð. A Stóru- borg var Hjalti smali. Ef Hjalti hefur verið fimmtán árum yngri en Anna, hefur hann verið fæddur um 1515-1520. Ég hef fundið þessi böm Önnu og Hjalta; Magnús, Vigfús, Erlend, Kristínu og Hjalta. Magnús Hjaltason lögréttumaður er sagður fæddur 1530-1540, sennilega nær 1540. Hann lést eftir 1610. Fyrri kona hans var Þórunn Björnsdóttir prests í Saur- bæ Gíslasonar, þau áttu son, Pál á Heylæk. Síðari kona hans var Þuríður Magnúsdóttir lögréttumanns í Stóra-Dal Amasonar, sonur þeirra var Arni, lögréttu- maður á Heylæk. Launsonur Magnúsar Hjaltasonar var Þórður, kona hans var Margrét Erasmundsdóttir, þau áttu ekki börn. Annar sonur þeirra var Vigfús Hjaltason. Kona hans var Guðrún Ólafsdóttir Björnssonar í Marteins- tungu. Meðal barna þeirra var Þórdís, kona séra Jóns Stefánssonar í Kálfholti. Þriðji sonurinn var Erlendur Hjaltason er bjó á Stóru-Borg. Kona hans var Guðrún Arnadóttir. Meðal barna þeirra var Hjalti Erlendsson í Stóru-Hildisey. Fjórða barn þeirra var Kristín Hjaltadóttir, hús- freyja í Fíflholtum. Maður hennar var Vigfús lögréttu- maður? Kristín dó barnlaus 1603. (Espolín 1159) Fimmta bamið var Hjalti Hjaltason, bóndi í Hild- isey, átti Þorgerði Sigmundsdóttur. Það má rekja fleiri niðja frá þessum sonum Önnu og Hjalta, en það væri gaman að vita um önnur börn þeirra. Þau eiga marga niðja allt til okkar tíma. Hólmfríður Gísladóttir Heimildir: Ættartölusafn séra Þórðar Jónssonar í Hítardal Lögréttumanntal Islenskar œviskrár Landmannabók Espolín http://www.ætt.is 15 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.