Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Qupperneq 16

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Qupperneq 16
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2010 Guðfinna Ragnarsdóttir: Ættareinkenni Við sögðum í síðasta blaði frá mjög sterkum ættareinkennum þriggja ætta: Reykjaættarinnar, Reykjahlíðarættar- innar og Briemættarinnar. Sömu sögu er sjálfsagt að segja um margar fleiri ættir. Skapferli, framkoma, útlit, gáfur og ótal eiginleikar berast frá kyni til kyns. Það er bæði gaman og fróðlegt að skoða ætt- areinkenni. Við státum af að vera komin af séra Jóni, eins og Starri í Garði eða drögumst með ættarfylgjurnar eins og Bergsættin þar sem menn kvu vera örir til ásta. Reyndar á sú sögusögn að vera tilkomin vegna þess að Guðni Jónsson, sem tók saman Bergsættina notaði orðið launböm um öll óskilgetin böm og þau urðu auðvitað mörg í stórri ætt. Spunnust af þessu ýmsar gamansögur eins og sú um stúlkuna sem var í tygjum við giftan mann. Móðir stúlkuna barmaði sér yfir þessu við vinkonu sína, en sagði um leið að það væri víst lítið við þessu að gera, því þau væru bæði af Bergsætt. Eins var það með sveitaprestinn sem þorði ekki með á dansleik, kvað það ekki hættulaust fyrir sig og sagði: Eg er svo ansi holdsveikur, ég er af Bergsætt. Utlit og einkenni, gáfur og gjörvileiki, verklegir og andlegir hæfileikar, gallar og kostir, allt virðist erfast og blandast og gera úr okkur þann einstakling sem við erum. Svo deila menn auðvitað endalaust um það hversu mikið í fari okkar séu erfðir og hversu mikið uppeldi og við því fæst víst seint tæmandi svar. Ef til vill liggur eitthvað í gömlu staðhæfingunni sem höfundur Njálssögu setti á skinn fyrir um 700 ámm að „Fjórðungi bregði til fósturs“. Alla vega sýna rannsóknir á eineggja tvíburum, sem ekki hafa alist upp saman, að þar eru á ferðinni tvær ótrúlega líkar manneskjur. Vinnuharka Guðni Jónsson sagnfræðingur fjallaði mikið um for- föður sinn Guðna „gamla“ Jónsson í Reykjakoti í Ölfusi.Guðni varfæddur 1716 og lést 1783.Fráhon- um er Reykjakotsætt talin. Fræg er sagan af Vigdísi elstu dóttur Guðna. Vigdís var fædd um 1739, hún bjó á Tannastöðum undir Ingólfsfjalli í Ölfusi. Hún var mesti forkur í öllu og kvenskörungur í hvívetna, nokkuð skapstór, kappgjörn og jafnvel ófyrirleitin, segir Guðni Jónsson um hana í íslenskum sagnaþátt- um og þjóðsögum IV. hefti. Það kom oft fyrir að aurskriður spilltu túnum á Tannastöðum. Einhverju sinni þegar vinnumaður Vigdísar, sem Bjami hét, „lingerður og seinlegur“ var að hreinsa túnið, þótti henni verkið ganga heldur seint og sló til Bjarna í bræði sinni með sandrekunni. En höggið varð meira en hún ætlaði því Bjarni lær- brotnaði. Var Vigdís þó orðin háöldruð. Gekk hann haltur síðan og var kallaður Bjarni á einum. Um hann var síðar ort: Bjarni á einum byrjaði búskapinn um vorið, en á góu endaði þá allt var komið í vandrœði. Gísli bróðir Vigdísar tók við búi í Reykjakoti eftir föður sinn og bjó þar um hálfrar aldar skeið. Hann þótti merkur maður og var hreppstjóri Ölfushrepps frá 1792. Hann var með auðugustu bændum. En hann var eins og hann átti kyn til bæði kappsamur í meira lagi og fljóthuga og hélt fólki sínu stíft til verka. Hann heyjaði niður í Ölfusi og var þá langur engja- vegurinn. Þegar Gísli var orðinn gamall og hættur að ganga til sláttar sagði hann fólki sínu að koma heim ef mikið óveður kæmi og ekki væri vinnufært. Ef fólkið notfærði sér þetta og kom heim sagði Gísli: „Temmilegt vinnuveður hefur nú alltaf verið hérna í dag“. Langlífí Vigdís og Gísli áttu ekki langt að sækja vinnuhörk- una því sagt var um Guðna föður þeirra að hann hafi sótt heyvinnuna fast um sláttinn og vakið fólk sitt snemma. Einhverju sinni gekk honum illa að vekja einn vinnumanninn, fannst hann sofa helst til lengi, og reyndi þó mikið. Kom þá í ljós að vinnumaður- inn var dauður í rúminu, hafði orðið bráðkvaddur í svefni. Guðni bað þá guð að hjálpa sér að hafa verið að reyna að vekja upp dauðan mann. Fyrir þá sem lásu greinina um fjármark Magn- úsar Grímssonar, Skógarkotsættina og Hraunfólkið í síðasta blaði má geta þess að ein dóttir Guðna í Reykjakoti hét Þjóðbjörg. Hún bjó ásamt Gísla manni sínum stórbúi á Villingavatni. Tengdasonur þeirra hét Björn, sonur séra Bjöms prests á Þingvöllum Páls- sonar prests Þorlákssonar sem mikið kom við sögu í Hraunfólkinu. Um Þjóðbjörgu var sagt að hún væri stjórnsöm og reglusöm og kjörorð hennar var að láta ekki bíða til morguns það sem gert yrði í dag. Mörg börn Guðna í Reykjakoti náðu háum aldri. Guðni Jónsson sagnfræðingur og afkomandi Guðna „gamla“ í Reykjakoti segir Þjóðbjörgu hafa orðið 92 http://www.ætt.is 16 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.