Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Qupperneq 18

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Qupperneq 18
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2010 Guðjón Óskar Jónsson skrifar: Síra Guðmundur Jónsson prestur Ólafsvöllum Skeiðum 1790 - 1798, Staðastað Snæfellsnesi 1798 - dd. f. 10. júlí 1763 Sólheimum Ytrahrepp Árn. d. 1. des. 1836 Staðastað In memoriam I. Dalakonan Friðsemd I ættartölubókum Steingríms biskups Jónssonar pag. 4643 segir svo: „Friðsemdarnafn hef ég heyrt, að svoleiðis sé komið á Suðurland. Sveinn skotti, sonur Axlar - Bjarnar, skal hafa þóttzt eiga eitthvað vanhenndt manni inn í Dölum. Eitthvert sinn, er hann var á ferð, mœtti hann konu hans að nafni Friðsemd, er hún bar mat engjar til manns síns, tók hann hana upp og setti Jyrir aftan sig, reiddi hana síðan í 2 dœgur samfleytt norður í land og sleppti henni þar. Konan komst meðferðum um haustið suður í Ytra- hrepp og var á Laugurn um veturinn en komst vestur sumarið eftir. Af þeirri Friðsemd skal nafnið vera orðið tíðkan- legt í Ytrahrepp". Skrifað eftir eiginhandarriti síra Guðmundar Jóns- sonar á Staðastað. Þessi saga er einnig í ættartölubókum Jóns Espólín pag. 6701. Mun vera byggð á fyrrnefndri heimild. Þessi atburður hefur gerzt á árunum 1630 - 1635. Þá bjó á Laugum Bjarni Arnkelsson náskyldur Oddi biskupi Einarssyni. Þeir voru að öðrum og þriðja frá Helga f. 1490 Eyjólfssyni bónda Lönguhlíð Hörgár- dal. Bjama á Laugum og konu hans hefur fæðst dótt- ir um það leyti, sem Dalakonan Friðsemd dvaldi á Laugum vetrarlangt. Dóttirin hlaut nafnið Friðsemd. Síra Guðmundi Jónssyni á Staðarstað var málið skylt, því að hann var afkomandi Friðsemdar Bjarna- dóttur frá Laugum, eins og rakið verður hér á eftir. í bókinni Nöfn íslendinga segir svo: Friðsemd: kvk. (Friðsemd, Friðsemd, Friðsemd- ar) Ein kona í Gull./Kjós bar nafnið samkvæmt manntali 1703. Öld síðar báru þrjár konur nafnið, tvær í Ám. og ein í Kjós. Árið 1855 hétu sjö konur Friðsemd, allar í Árn, og Gull./Kjós. Árið 1910 báru 19 konur það, þar af níu í Árn. Níu konur voru skráð- ar með þessu nafni í þjóðskrá 1989. Að baki nafninu liggur nafnorðið friðsemd, spekt, það að vera friðsamur. Friðsemel: kk. (Friðsemel, Friðsemel, Friðsem- els). Ein karl í Snæf. bar þetta nafn manntali 1855. Uppruni nafnsins er óviss en það gæti verið myndað af kvenmannsnafninu Friðsemd og upphafi nafns sem hefst á E1 t.d. Elín, Elínberg. II. Stutt áatal síra Guðmundur Jónssonar 1. grein 1. Jón Stefánsson smiður, bóndi Sólheimum 1746 - dd. f. 1710 d. 1775 2. kona: Vilborg Árnadóttir 2 - 1 (1. kona Jóns var Friðsemd f. 1707 d. 1749/1750) Jónsdóttir, bónda Núpstúni, Erlendssonar sbr. 2. gr. 3. Vilborg s.k. Jóns var því bróðurdóttir f.k. hans.) 2. Stefán Gunnarsson bóndi Sólheimum 1709 f. 1661 d.fyrir 1729 ~ Vigdís Einarsdóttir 3-2 3. Gunnar Jónsson bóndi Hvammi Landssveit 1655 17. öld ~ Salvör Magnúsdóttir 5-3 4. Jóns Stefánsson prestur Mosfelli Grímsnesi 1603 - dd. d.1635 ~ Þorgerður Jónsdóttir 9-4 5. Stefán Gunnarsson rektor Skálholti 1575 - 1578 ~ ráðsmaður Skálholtsstóls 1578 - 1619 bjó lengi Oddgeirshólum 16,- 17. öld á lífi 1624 bm.ókunn 2. grein 1. Vilborg Árnadóttir hfr. Sólheimum búandi ekkja s.st. 1775 - 1777 svo hfr. Gröf f. 1725 d. 14. des. 1810 Húsatóftum Skeiðum 1. m. Jón Stefánsson 1 - 1 (2. m. Magnús Guðmundsson f. 1749 á lífi 1793 bóndi Sólheimum 1777-1786 Gröf 1789-1793) http://www.ætt.is 18 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.