Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Page 23

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.2010, Page 23
Fréttabréf Ættfræðifélagsins í febrúar 2010 Guðfinna Ragnarsdóttir: Ættfræði húsa Á þessari vatnslitamynd frá Stykkishólmi eftir Svein Þórarinsson má sjá tvö hús, Prestshúsið og Kúldshúsið, sem eiga sér * langa og merka sögu. I þeim hafa búið margar þekktar persónur sem sett hafa svip sinn á samtíðina. Prestshúsið Húsið lengst til vinstri var kallað prestshúsið, eða prestakallshúsið, það er forskalað timburhús sem í dag stendur fallega upp gert við Silfurgötu 6. Silfur- gatan er fyrsta gatan í Hólminum sem fékk endanlegt nafn og það nafn hefur haldist síðan. Prestshúsið byggðu sr. Sigurður Gunnarsson (1848-1936) og kona hans Soffía Emilía Einarsdóttir (1841-1902). Húsið er tveggja hæða timburhús og var flutt til- höggvið frá Noregi. Faðir Soffíu var Einar Sæmunds- son hattari frá Brekkubæ í Reykjavík. Séra Gunnar var föðurbróðir Gunnars Gunnarssonar skálds. Sigurður og Soffía bjuggu í prestshúsinu frá 1895 en séra Sigurði var veitt Helgafellsprestakall 26. febr- úar 1894. Þau hjónin höfðu bæði dvalið langdvölum í Englandi hjá Sigríði systur Soffíu (1831-1915), sem gift var Eiríki Magnússyni, bókaverði í Cambridge (1833-1913),og voru því vel mælt á ensku. Það varð til þess að margir erlendir merkismenn heimsóttu þau, m.a. Collingwood (1854-1932). 1917-1919 bjó séra Ásmundur Guðmundsson, síðar biskup, í prestshúsinu, og árið þar á eftir séra Ásgeir Ásgeirsson síðar prestur í Hvammi. Þar bjó síðar sr. Sigurður Ó. Lárusson (1892-1978) sem prestur var í Hólminum 1920-1965. Enginn prestur hefur starfað jafnlengi í Helgafellsprestakalli og séra Sigurður. Sigurður var bróðir Guðrúnar Lárusdóttur konu Helga Ingvarssonar yfirlæknis á Vífilsstöðum. Sr Sigurður var móðurbróðir Guðrúnar Pálínu Helga- dóttur skólastýru Kvennaskólans. Lárus Pálsson, fað- ir sr. Sigurðar og Guðrúnar, var smáskammtalæknir og gekk undir nafninu Lárus hómópati. Hann var afi og alnafni Lárusar Pálssonar leikara. Kúldshús Húsið í miðjunni kallast Kúldshús. Það er með gafl- asneiðingu með svörtu þaki. Það er nefnt eftir séra Eiríki Kúld (1822-1893) Hann byggði það fyrst í Flatey 1848, en þar setti hann bú 1844. Hann vígð- ist 1849 aðstoðarprestur föður síns, Ólafs Sívertsen (1790-1860) prófasts í Flatey. Eiríkur lét taka húsið niður í Flatey 1860 og reisti það á Þingvöllum á Þórs- nesi í Helgafellssveit en það ár fékk hann Helgafell Þetta málverk eftir Svein Þórarinsson sýnir tvö gömul og sögufræg hús í Stykkishólmi, Prestshúsið, fjær til vinstri, og Kúldshúsið, við hlið þess, með svörtu þaki fyrir miðri mynd. I þeim hafa búið margir merkir menn sem settu svip sinn á menningar- og atvinnulíf Breiða- fjarðar og landsins alls. þar sem hann var prestur alla tíð síðan. Hann flutti húsið til Stykkishóims 1868 og bjó þar síðan og ekkja hans Þuríður eftir hans dag. Faðir Þuríðar var Sveinbjöm Egilsson rektor og ljóðaþýðandi. Bróðir Þuríðar var Benedikt Gröndal skáld. Systir séra Eiríks Kúld var Katrín, eiginkona séra Guðmundar Einarssonar sem lengst af var prest- ur á Breiðabólsstað á Skógaströnd. Dóttir Katrínar og Guðmundar var Theodóra Thoroddsen skáldkona sem gift var Skúla Thoroddsen sýslumanni, alþingis- manni og ritstjóra. Allt þetta fólk hafði mikil áhrif á menningar- og atvinnulíf bæði við Breiðafjörð og á landinu öllu. Ágúst Þórarinsson keypti Kúldshús um 1902 og bjó þar til 1914. Árið 1918 keypti Rannveig Jóns- dóttir, f. 1884, Kúldshús. Rannveig var þá ung og ógift hannyrðakona, kraftmikil og áræðin, sem flutti norðan úr Húnavatnssýslu. Hún skírði húsið Auðkúlu og gekk það undir því nafni meðan það var í hennar eigu. Hún rak hannyrðaverslun og var einnig um tíma organisti í Stykkishólmi. Hún giftist síðar Hannesi Stefánssyni sem oft var kallaður „trékyllir“ en hann kom frá Trékyllisvík á Ströndum. 1940 keypti Ólafur Sturlaugsson bóndi í Ögri, áður Akureyjum, Kúlds- hús af Rannveigu. Kúldshús er nú í eigu Sesselju Kristinsdóttur kenn- ara í Stykkishólmi, sem á rætur við Breiðafjörðinn langt aftur í aldir og manns hennar Árna Valgeirsson- ar. Þau hafa gert húsið upp af miklum myndarskap. Kúldshús er friðað. http://www.ætt.is 23 aett@aett.is

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.