Verkakonan - 01.01.1945, Blaðsíða 4
Jóhanna Egilsdóttir:
Verkakonan krefst réttlætis
í upphafi skapaði guð himinn og jörð og manninn;
og konuna honum til dægrastyttingar og gamans, eða
svo segir í sköpunarsögunni um upphafið.
Samkvæmt þessu orðalagi hefur viðhorfið til konunn-
ar ávallt, eða alveg til síðasta tugs þessarar aldar, verið
þess eðlis, að konan væri einhver óæðri vera en maður-
inn, sem ekki þyrfti því að taka eins mikið tillit til.
Þessi hugsanavilla mannanna, sem ráðin hafa haft
gegnum aldirnar, hefur þó þróast til hins betra — þró-
ast svo hægt, sem skríðandi ormur —.
Eg hef ekki hugsað mér að rekja í þessari stuttu
grein þróunarsögu kvenréttindanna í heiminum frá
öndverðu, heldur aðeins stikla á því stærsta í baráttu-
sögu íslenzkra verkakvenna frá því er fyrsta stéttar-
félag kvenna var stofnað hér á landi, en það var V.K.F.
Framsókn í Reykjavík 1914.
Árið 1907 var fyrsta kvenréttindafélagið stofnað á
íslandi, — var það Kvenréttindafélag Islands. Aðal-
stefnumið þess var að berjast fyrir réttindum kvenna
að lögum til jafns við karla. Árið 1914 hafði Kven-
réttindafélagið ekki enn sett á stefnuskrá sína neitt,
sem beint sneri að hagsmunabaráttu íslenzkra kvenna.
Þetta sáu konur í Kvenréttindafélaginu og stofnuðu
því annað félag, er fyrst og fremst lét hagsmunabaráttu
verkakvenna til sín taka.
Þegar svo V. K. F. Framsókn var stofnað 1914 undir
forustu hinnar merku konu, Jónínu Jónatansdóttur,
hófst hin harða og lífsnauðsynlega barátta fyrir bætt-
um kjörum reykvískra verkakvenna, sem háð var gegn
vilja- og skilningsleysi atvinnurekenda og jafnvel verka-
kvenna sjálfra, sem haldnar voru blekkingu og hótun-
um atvinnurekendanna; er notuðu sér svo miskunnar-
laust og án alls bróðurkærleika hina röngu „trú“, um
getuleysi og hæfnisleysi kvenna til líkamlegra og and-
legra starfa. Svo gjörbreyttur er þessi hugsunarháttur
nú, — sem betur fer —, að varla kemur fyrir að nokk-
ur atvinnurekandi komi fram við verkakonur með hót-
anir eða blekkingar, hvað þá að konur skilji ekki nauð-
syn samtaka sinna.
Á þessum tímamótum félagsins er ekki úr vegi að
rifja upp þær breytingar, sem orðið hafa á lífskjörum
verkakvenna á þeim 30 árum, sem félagið hefur starfað,
og sem er bein afleiðing þrotlausrar baráttu samtaka
þeirra í V. K. F. Framsókn.
Á fyrsta tug þessarar aldar og áður en V. K. F.
Framsókn var stofnað, gengu konur til kola-, salt- og
timburvinnu, og var ekki svo sjaldgæft að sjá konur
rogast með kola- og saltpoka niður við höfn í uppskip-
un úr skipum við hlið karlmannanna. Ekki höfðu þó
konurnar sama kaup og karlmennirnir, þrátt fyrir sömu
vinnu, því kaup karla var 25 aurar á tímann, en
kvennakaupið var 12 aurar á tímann; enginn matartím-
inn og því síður kaffitími, rétt aðeins tími til að gleypa
í sig matinn undir eftirliti verkstjóra, sem átti sennilega
að sjá um að maturinn yrði ekki tugginn of vel.
Kaup kvenna var 12 aurar á tímann, hvort sem unnið
var í dag-, nætur- eða helgidagavinnu, og unnu þær
oft 16 tíma í sólarhring við kolauppskipun eða þess
háttar, og voru þó ekki of haldnar af fjárfúlgunni.
Þetta er ekki falleg lýsing á lífskjörum kvenna hér
áður fyrr. Má þó tilnefna enn ljótari lýsingu á Hfskjör-
um þeirra og réttleysi gagnvart húsbændunum fyrir
ekki meira en 30—40 árum síðan. Sú sté.tt kvenna,
er vinnukonur nefnast, höfðu þá 5,00 krónur á mán-
uði, en svo skammt voru þessar konur frá því að
geta talizt ambáttir húsbænda sinna, að þær voru
sendar á „eyrina“ til fiskvinnu og annarrar hafnar-
vinnu, ekki fyrir þessa 12 aura á tímann, heldur sitt
fasta mánaðarkaup. Síðan hirtu húsbændurnir kaupið,
er þær höfðu unnið fyrir við uppskipunina eða annað
þess háttar.
Sá þáttur íslenzka atvinnulífsins, er mest hefur verið
stundaður af verkakonum, er fiskbreiðsla og fiskþvott-
ur. Sá aðbúnaður, er konur höfðu við fiskþvott, var svo
hörmulegur, að fullyrða má, að margar hafi beðið
heilsutjón í þeirri vosbúð, er þær stóðu í allan daginn.
Aðkoma kvenna í fiskhúsin var oft sú á veturna, að
þær urðu að byrja á að brjóta klakann, sem setzt
hafði í þvottakörin um nætur; síðan hófst þvotturinn í
ísköldu vatni og í ísköldum húsakynnum allan daginn.
2 VERKAKONAN