Verkakonan - 01.01.1945, Side 14
Frá liðnum árum
Jónína Jónatansdóttir:
Gullin mín
Þau voru hvorki dýr né fjölbreytt heimafengnu
gullin, sem við telpurnar lékum okkur að, þegar ég
var lítil, en við undum við þau með ljúfu geði og vor-
um sælar í gleði okkar og áhyggjulausum leik.
Þau voru misjafnlega falleg þessi gull, en stundum
kom það fyrir að gylltur eða rósóttur bolli brotnaði og
þá urðu rósóttu og gylltu brotin fallegustu og dýrmæt-
ustu leikföngin og geymd þar í gullastokknum, sem
bezt fór um þau. Sum brot voru þar líka blökk og Ijót,
en þeim vildum við henda út í horn.
En litlar stúlkur vaxa upp og verða fullorðnar og
áður en varði kvaddi ég bernskuna, og hætti að leika
mér að gylltu og rósóttu brotunum mínum.
Lífið gaf mér önnur viðfangsefni. Það gaf mér marg-
ar góðar gjafir og þá miklu hamingju að eiga áhuga-
mál og fá að starfa fyrir þau. Og starfið, ekki sízt á
meðal ykkar, kæru félagssystur mínar, færði mér oft
mikla ánægju og djúpa gleði. Hjá ykkur átti ég marg-
ar mínar beztu stundir. Þið voruð svo góðar við mig
alla tíð, ég fann streyma frá ykkur til mín samúð og
hlýjan hug, ég fann að þið báruð traust til mín og
stóðuð á bak við mig, þegar ég var að reyna að vinna
að ykkar málum, og að þið sýnduð mér umburðarlyndi
og fyrirgáfuð mér, þegar ég var ekki nógu dugleg.
Nú er ég hætt að geta starfað með ykkur og get
ekki einu sinni notið þeirrar gleði að koma á fund til
ykkar, horfa á ástúðlegu andlitin ykkar, sem mér
þykir svo vænt um, og láta hlýjuna frá handtökum
ykkar verma mig.
En það er annað, sem ég get gert. Eg á endur-
minningarnar mínar, gullastokkinn minn, sem ég get
opnað þegar ég vil. Og nú er það orðin mín mesta gleði
að sitja og rísla mér við gullin mín, sem þar eru
geymd.
Þar á ég svo margt fallegt, sem samveran við ykkur
hefur gefið mér. Vænst þykir mér um minningarnar
um það litla, sem ég gat gert fyrir ykkur og ykkar mál,
það eru gylltu og rósóttu brotin, sem gaman er að
horfa á. Eg sé þar líka önnur brot, blökk og ljót, það
eru minningar um það, sem ég hefði ef til vill getað
gert, en sem ég vanrækti. En ég veit að þið hafið fyrir-
gefið mér það allt, og að þið vitið að ein dýpsta gleðin
og ánægjan í mínu lífi var sú að fá að nota kraftana
til að starfa fyrir ykkur og með ykkur.
Eg get ekki þakkað ykkur eins og mig langar til, en
ég vil nota þetta tækifæri og senda ykkur öllum sam-
eiginlega og hverri einstakri innilegustu kveðjur mínar.
Mætti blessun guðs hvíla yfir ykkur öllum, lífs og
liðnum, störfum ykkar, heimilum og ástvinum. Mætti
sú sterka föðurhönd, sem getur látið máttinn full-
komnast í veikleikanum, ætíð vera ykkur stoð og hlíf.
12 VERKAKONAN