Verkakonan - 01.01.1945, Síða 17
með málefni sín til hennar, hvort heldur voru þeirra
einkaáhugamál eða verkakvennafélaginu viðkomandi:
„Ég skal gera allt, sem ég get fyrir þig í þessu máli.“
Og það var aldrei svo mjög lítið, sem hún gat, hennar
loforð reyndust ætíð traust.
A fyrstu árum félagsins var við marga erfiðleika að
eiga. Einn með þeim verstu tel ég, er verkakonur sjálfar
virtust ekki kæra sig um að berjast fyrir réttmætum
kjarabótum sér til handa, enda þótt þær væru sem
eðlilegt var, mjög óánægðar með kjör sín, og var það
síður en svo, að þær, sem hvergi vildu láta sín getið
með kröfur um bætt kjör, væru ánægðari eða mögluðu
minna en hinar, sem stóðu á verði fyrir bættum hag
sínum og annarra. Ótrúlegt mundi mörgum verkakon-
um þykja nú þau kjör, sem konur, er gengu í almenna
vinnu á öðrum tug 20. aldarinnar, áttu við að búa.
Mikið þótti húsfreyjum þessa bæjar þá að borga tvær
krónur fyrir tólf til fjórtán stunda vinnu við þvotta eða
hreingerningar og engar smávegis tekjur þóttu það, er
kaupið hjá kvenfólki var komið upp í 60 aura um
tímann, enda kostaði það mikla baráttu að ná því fram.
Efalaust muna margar félagskonur hvaða ofdirfska
það þótti og jafnvel ganga brjálæði næst, er farið var
Sigurjón Á. Ólafsson:
30 ára samfylgd
Árið 1914 var fólksfjöldinn í Reykjavík um 13770,
karlar og konur. Þá voru gerð út til fiskveiða héðan
32 skip, þar af 17 togarar. Atvinna bæjarbúa byggðist
þá sem síðar á fiskframleiðslunni. Utgerðarmennirnir
voru þá allsráðandi um kjör verkalýðsins til sjós og
lands. Konur unnu að uppskipun afla og verkun hans.
Einnig unnu þær að uppskipun þungavöru, svo sem
kola, salts og fleira. Var þá alsiða fram að þeim tíma,
að konur bæru kola- og saltpoka á bakinu eftir slý-
hálum og sjóblautum bryggjum. Fiskþvottur fór fram
undir beru lofti úr ísköldum sjó eða vatni. Vinnutím-
inn minnst 10 stundir og alloft 12. Kaupgjald kvenna
var 15 aurar á tímann og Dagsbrúnarmanna 35 aurar.
Upp úr þessum jarðvegi vanlíðunar og þrælkunar,
spruttu svo samtök verkakvenna hér í bæ fyrir 30 ár-
um síðan, fyrir atbeina nokkurra áhugakvenna, með
Jónínu Jónatansdóttur í fararbroddi, er síðan stjórnaði
samtökum verkakvenna með skörungsskap um 20 ára
skeið. Hér eru ekki tök á að rekja til neinnar hlýtar
hið merkilega starf, sem félagið hefur innt af hendi liðin
30 ár. Er það merkilegur kapítuli í sögu þjóðarinnar um
baráttu fyrir frelsi og jafnrétti kvenna á Islandi. Síðast-
fram á að gefið væri frí 1. maí, frídag verkafólks. Ég
man eftir undrun kvenna á þeirri fiskstöð, sem ég vann
á árið 1923, er ein kona úr stjórn verkakvennafélags-
ins (frú Karólína Siemsen) kom á vinnustaðinn og
skoraði á meðlimi verkakvennafélagsins og aðra, er
væru á þessum vinnustað, að vinna ekki nema til há-
degis í dag, 1. maí, en koma og taka sameiginlegan þátt
í kröfugöngu verkalýðsins og öðrum hátíðahöldum
dagsins. Ekki var frítt við að þessi ötuli stjórnarmeð-
limur verkakvennafélagsins fengi háðsglott og jafnvel
napuryrði á bakið, er hún var gengin á brott, en á þeim
tímum þýddi ekki að kippa sér upp við slíkt. — Og að
mínu viti er það ekki samlíkjandi að halda við og koma
í framkvæmd réttmætum kröfum nú og var í þá daga.
En ég vona að verkakvennafélagið, er það á í samn-
ingum og er að berjast fyrir bættum hag meðlima sinna,
þurfi aldrei að láta til baka neitt af þeim mannrétt-
indaumbótum, er hefur áunnist. Og treysti ég því, að
þar verði áframhaldandi staðið þétt á bak við rétt-
mætar kröfur og hvergi hopað, en ekki öfgakenndir
loftkastalar látnir ráða gerðum félagsins, heldur verði
áfram háð markviss barátta fyrir bættum hag verka-
lýðsins.
liðin 10 ár hefur félagið notið forystu hinnar ágætustu
og fórnfúsustu konu í verkalýðsmálum, frú Jóhönnu
Egilsdóttur, sem um langt skeið var hægri hönd frú
Jónínu Jónatansdóttur, í hennar félagsmálabaráttu.
Undir stjórn Jóhönnu hefur félagið haldið áfram að
vaxa og þroskast og skapað verkakonunum aukið lífs-
öryggi með hækkuðu kaupgjaldi, styttum vinnutíma,
bættri aðbúð og fullkomnari starfsskilyrðum á vinnu-
stöðunum. Uppskipunarvinnan er horfin úr sögunni.
Fiskþvotturinn er framkvæmdur í nýtizku húsum,
kalda vatnið úr sögunni. Með breyttum háttum á nýt-
ingu sjávarafurða hefur starf og aðbúnaður allur við
vinnu tekið stórfelldum framförum. Hefur félagið verið
þar vel á verði og fengið miklu til vegar komið á þessu
sviði. Tímakaup kvenna er nú almennt kr. 1.64 og
vinnutíminn 8 stundir. Þá hefur á síðari tímum starfs-
svið félagsins aukizt mjög.
Verkakvennafélagið Framsókn hefur frá fyrstu tíð
verið einn af hornsteinum Alþýðusambands Íslands og
ávalt staðið þar í baráttunni, þar sem raunsæi og
skynsamleg vinnubrögð hafa ráðið. Verkakonurnar hafa
sýnt og sýna enn mikinn stjórnmálaþroska. Þær eru
fyrst og fremst íslenzkar í anda og líta á líf sitt og starf
helgað heimilum sínum og fósturjörð. Austrænum
byltingastefnum, áhrifum og yfirráðum, vinna þær
gegn, og munu lengi styrk stoð lýðræðis, frelsis og
mannréttinda.
Á liðnum 30 árum hafa kjör íslenzkra verkakvenna
VERKAKONAN 15