Verkakonan

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Verkakonan - 01.01.1945, Qupperneq 21

Verkakonan - 01.01.1945, Qupperneq 21
var 75 ára afmæli hennar nýafstaðið, og var henni þá vikið nokkrum krónum. En svo er margt sinnið sem skinnið. Onnur fullvinnandi félagskona kom ergileg yfir verðinu, þó yngri væri. Hún skildi ekki jafnvel breytinguna á verðgildi peninganna, eða ef til vill var hún snauðari af félagshyggju. Loks kom svo hið langþráða afmæliskvöld, konurn- ar tóku að safnast saman á tilsettum tíma; konur eldri sem yngri, sumar með „verri helminginn" með sér, aðrar í fylgd með félagssystur eða kunningja, sem þær hafa boðið með sér. Boðsgestirnir slæðast með, unz hver stóll á fætur öðrum er setinn. Loks er súpan borin inn, skeiðar glamra við diska og tennur, þó hvergi sé höndin hreyfð jafnhart og við labra-vask, þá tæmast diskarnir tiltölulega fljótt og næsti réttur er borinn á borð. Dagskráin hefst, kvöld- skráin ætlaði ég að segja. Avörp eru flutt, kveðjur, hvatningarorð, heillaóskir, og félaginu er flutt kvæði, sem mörgum finnst hliðstætt drápum þeim, er góð hirðskáld fluttu konungunum til forna, þrungið dýr- mætum minningum, ómar unninna sigra, óður framtíð- arinnar hljómar þar í óskamálum og líkingamyndum, og ekki er mér grunlaust um að konur hefðu óskað að sitja í hásæti við hlið skáldsins. Síðast kom svo gamanleikrit. Þessir þættir, hver um sig, hafa vakið ýmis konar geðhrif, sumar félagskonur hafa minnzt þeirra gömlu daga, þegar félagið var á bernskuskeiði og varð fyrir alls konar mótblæstri og andúð, sem nú myndi þykja næsta ótrúlegt. Aðrar hafa hugsað til persónulegra stunda, sem þær hafa átt við þvottakarið, á fiskreitun- um, við skúringafötuna, fiskflökunina eða eitthvað annað, kannske störf og baráttu heimilisins. Við hittum forystukonur okkar og formann, við lif- um góðar minningar og góða framtíðardrauma. Loks er'svo stiginn dans og þá kemst nú líf í tusk- urnar, það er óþarfi að tala um hjásetur eða þess háttar, herrarnir eru miklu færri, en hvað gerir það. Við kunnum að dansa hver við aðra og það veldur að minnsta kosti engum hneykslunum. Ein af okkar ágætu forystukonum sagði í ræðu ‘í þessu hófi: „Svoleiðis skemmtum við okkur bezt.“ Sama má segja um félagsstörfin: Svoleiðis vinnum við bezt. Afmælisblaðið okkar varð miklu síðbúnara en við gerðum okkur vonir um í haust. Veldur því prentaraverkfallið í haust og síðan jólaannir prentsmiðjunnar. En við vonum að konur taki þeim mun betur á móti blaðinu, sem þær hafa lengur þurft að bíða eftir því. V.K.F. FRÁMSÓKN óskar öllum félagskonum sínum og velunnurum verkalýðssamtakanna GÓÐS OG FARSÆLS NÝÁRS

x

Verkakonan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verkakonan
https://timarit.is/publication/887

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.