Foreldrablaðið - 01.12.1951, Síða 6

Foreldrablaðið - 01.12.1951, Síða 6
Ánægjuleg andlit á jólaskemmtun í Austurbæjarskólanum. -— Ljósm.: Vignir. nú settlega, og jafnvel versti óþekktar- ormur bekkjarins er óþekkjanlegur, þar sem hann stendur, táhreinn, bljúgur og brosandi í beztu fötunum sínum með húf- una í hendinni. Og það er dáðst að þess- um nýju, fallegu kjólum og fínu fötum. Svo er gengið til stofu, þar sem teikni- meistari bekkjarins er e. t. v. búinn að skreyta töfluna með fallegu jólatré eða uppljómaðri kirkju í jólasnjó og einhverj- ir hafa prýtt veggina með marglitum pappír. Svo ganga hóparnir hver af öðr- um niður í samkomusalinn, baðaðan ljós- um, þar sem fagurlega skreytt jólatré stendur úti í horni, og þegar allir eru komnir, hefst skemmtunin með því, að allur þessi ungi og prúðbúni hópur syng- ur hinn einfalda en fagra sálm um barn- ið góða í Betlehem. A eftir verður ofur- lítið hlé, en þá fer kliður eftirvæntingar- innar um salinn, því að nú mun tjaldið bráðum dregið frá og þá birtast á leik- sviðinu tröll eða álfar, kóngar og drottn- ingar, prinsessan og karisson úr koti. Oft- ast er steinhljóð meðal áhorfenda, en fyr- ir kemur þó, að eitthvað er pískrað: ,,Er það ekki Gunna, sem er drottningin?“ „Nei, það er Stína“. „Víst er það Gunna . . Dansmeistarar svífa um sviðið, hljóðfæraleikarar og annað sönglistarfólk veitir skemmtan, klappað er lof í lófa, og endurtaka verður allt það, sem einkum hefur veitt gaman. Pallgeigur grípur marga, en þarna er hann líka yfirunninn í fyrsta skipti á æfinni, og það er ómetan- legt öllum þeim, sem síðar eiga eftir að standa andspænis fullu húsi áheyrenda, en hér hafa margir þeir fyrst komið fram, sem nú eru orðnir eða langt komn- ir á veginum til þess að verða viðurkennd- 6 FORELDRABLAÐIÐ

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.