Foreldrablaðið - 01.12.1951, Síða 11

Foreldrablaðið - 01.12.1951, Síða 11
ann sé Maóríi. í skólunum sitja brúnu og hvítu börnin hlið við hlið. I verksmiðjun- um má einnig sjá þetta hörundsfallega og íturvaxna fólk með svart liðað hár og dökkar hendur leysa verkin í góðri sam- vinnu og eindrægni við hið hvíta fólk. Og nú þykir það engin minnkun, þótt bam fæðist með brúnu augun frum- byggjans. Allt þetta er gott dæmi um það, hvert komast má með frumstæðar þjóðir, ef skynsamlega er á málunum haldið og gagnkvæmur skilningur og góð- ur vilji látinn ráða framkvæmdum. Hinir hvítu menn höfðu að sjálfsögðu meira að miðla hinum brúnu bræðrum sínrnn, og Maóríarnir hafa að vonum haft mestan hagnaðinn menningarlega séð af hinum friðsamlegu og heillavænlegu sam- skiptum seinustu aldar við sinn þroskaða og mannaða hvíta bróður. Hinu er oft gleymt og lítt á lofti haldið, hvað hinir hvítu menn hafa og gætu lært af frum- stæðum þjóðum. Hafa t. d. ekki vélar, tækni og fjöldaframleiðsla tortímt með öllu ýmiss konar merkilegum handiðnum, og gert það að verkum, að snilligáfa og framúrskarandi hagleikur á þessum svið- um fær ekki að þroskast eða fer í súginn? Aður var að því vikið, hve snjallir Maóríarnir á Nýja-Sjálandi væri í þeirri list að skera út og telgja. Utskurðarlist þeirra hefur gengið að erfðum mann fram af manni, og áhrifa hennar gætti fljótlega í nýsjálenzkum skólum. I fyrstu voru hvítu börnin áhorfendur. Hand- bragð og hagleikur hinna brúnu félaga þeirra vakti athygli þeirra og aðdáun. En ekki leið á löngu, áður en þau fóru líka að handleika hnífinn. Kom þá í ljós, að fleiri gátu lært að halda á skurðhnífnum og búið til fallega gripi, heldur en haldið var í fyrstu. Og ekki var starfsgleðin lítil. — Síðan hefur útskurður og smíðar yfirleitt farið mjög í vöxt á barnaskólum og heimahúsum á Nýja-Sjálandi. Þykir árangur vera góður og uppeldisgildi Hvítur dretigur við smíðar. ótvírætt. Kunna Ný-Sjálendingar vel að meta þetta og nota sér óspart kunnáttu og listgáfu frumbyggjanna. Oft er á það minnzt, að íslenzku bæja- og borgarbörnin séu mitt í myndarskap sínum og glæsileik harla óró og hvikul í hugsun og starfi. Ef þetta er satt, ættu foreldrar að gefa smíðum og útskurði meiri gaum en nú er gert. Mættu þeir gjarnan gefa börnum sínum tækifæri til þess að vera út af fyrir sig, í horni, kjall- ara eða háalofti við útskurð og smíðar. Mundi það veita hinni miklu starfsorku barnanna í heilbrigðari farvegi og skapa þeim meiri sálarró heldur en bíóráp og tilbúin, vélknúin leikföng. Sköpunargáfa og þrá blundar í hverju barni, og smíði eða útskurður, þó ekki væri nema lítils hlutar, mundi veita því óblandna ánægju og halda um leið huga þess og hönd óskiptum að ákveðnu viðfangsefni. FORELDRABLAÐIÐ 1 1

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.