Foreldrablaðið - 01.01.1971, Side 4
2
Bréfahorninu hefur borizt bréf frá móður, sem
kallar sig ,,B. G.“ Hún á dreng í 2. bekk í barna-
skóla hér í Reykjavík. Skólatími drengsins er frá
kl. 13,05 til 15,30. ,,B. G.“ finnst nesti óþarft.
En hvað segja skólamenn?
Kristján Sigtryggsson, skólastjóri Hvassaleitis-
skólans, svarar spurningunni:
Er nesti í skóla nauðsynlegt?
Ég tel æskilegt, að börn hafi nesti með sér, ef
þau eru í skólanum lengur en 4 kennslustundir sam-
fleytt.
Sérstaklega hef ég þá í huga börn, sem fara
að heiman snemma á morgnana. Aðstaða þeirra
heima er misjöfn, sum fá staðgóðan morgunmat
áður en þau fara í skólann, önnur ekki.
Börn, sem sækja skóla eftir hédegi, hafa aftur
á móti flest fengið góðan hádegisverð áður en þau
fara og standa þannig betur að vígi.
Flest fullorðið fólk viN fá kaffitíma í virinunni,
ef það vinnur frá kl. 8 tii 12 eða kl. 13 til 17.
Nám barnanna í skólanum er einnig vinna, stund-
um erfið, og er því eðlilegt, að þau fái hvíld og
hressingu. ef vinnutími er langur.
Ýmsar aðstæður í skólanum valda því, að skóla-
dagar barna eru mislangir. Þörfin fyrir nesti er því
misjafnlega mikil frá degi til dags og stundum
þarflaust að hafa það.
Svar mitt er að sjálfsögðu miðað við þau
fræðslulög, sem nú eru í gildi, og þann vikulega
kennslustundafjölda, sem nú tíðkast. En íslenzkir
þjóðfélagshættir hafa breytzt svo mikið á undan-
förnum áratugum og við þurfum að lengja dag-
legan skólatíma og minnka heimanám verulega,
— helzt þarf heimanám að hverfa alveg. Þá má
svara spurningunni þannig:
Nemendur verða að fá mat á skólatíma, annað-
hvort hafa með sér nesti eða fá mat í skólanum.
Reykjavík, 5. 5. 1971.
Kristján Sigtryggsson.