Foreldrablaðið - 01.01.1971, Blaðsíða 33

Foreldrablaðið - 01.01.1971, Blaðsíða 33
31 leggingar, einkum í köflunum um aga og afbrýði- semi. Annars er það ekki ætlun mín að ræða bók- ina í heild, heldur aðeins lítillegt þann kafla henn- ar, sem ég tel ekki eiga neitt erindi til íslenzkra foreldra nú á tímum, en það er kaflinn Kynhlut- verk og samfélagsstarf. Strax í upphafi slær höfundur því föstu, að eðli karla og kvenna sá ákaflega ólíkt, og þess vegna megi ekki ala drengi og stúlkur upp á sama hátt. Uppeldið verði fyrst og fremst að miða að því, að þau séu fær um að gegna kynhlutverkum sín- um síðar á lífsleiðinni. Næst kemur svo skilgrein- ing á kynhiutverkunum og upptalning á þeim skyld- um, sem eiga að hvíla á hvoru kyni um sig. Móðir- in á að annast börnin og veita þeim ást og um- hyggju, sinna líkamlegum þörfum þeirra og vinna húsverkin. Hún þarf líka að taka ve! á móti ,,pabba“, þegar hann kemur heim á kvöldin, því að hann þarfnast rólegs ,,aðlögunartimabils“ frá kröfum heimsins til kröfu heimilisins. Þar með virðist hlutverki móður vera lokið að dómi höf- undar. Þá er það faðirinn, húsbóndinn á heimilinu, höfuð fjölskyldunnar, sem kemur til skjalanna, og honum er ekki ætlað neitt smáræði. Hann á að halda uppi aga á heimilinu, því að það samrýmist ekki hinu blíða og viðkvæma eðli móðurinnar að vera ströng og ákveðin, heldur getur slíkt stofn- að aldagömlu móðurhlutverki hennar í voða. Fað- irinn á að móta samvizku barnanna, og þá eink- um drengjanna auðvitað, því að hann á að vera persónugervingur siðalærdóms og aga. Og ekki nóg með það. Hann á einnig að vernda barnið fyrir ýmiss konar hættum hins daglega lífs, t. d. í umferðinni, hættum af rafmagnstækjum o. s. frv. Veslings mennirnir hljóta að vera allan daginn á þönum á milli vinnustaðar og heimilis til þess að bjarga börnunum úr bráðum lífsháska. Ekki er allt upptalið enn, því að nú á faðirinn einnig að vernda móðurina gegn ódælu barni og síðan barnið aftur gegn ofverndunarhneigðri móður. Fer þetta að verða nokkuð margþætt verndunarstarf, enda bandarískum karlmönnum ekki fisjað saman. Aft- ur á móti er þeim tekinn strangur vari fyrir því að skipta um bleyjur á barni sínu, mata það eða þaða, því að ,,þá er sú hætta á ferðum, að barn- ið eigi að lokum tvær mæður, en ekki móður og föður“. í framhaldi af þessu ræðir höf. nauðsyn þess, að ekki sé krafizt sams konar hegðunar af báðum kynjum. Umfram allt megi mæður og kennarar ekki rækta hið kvenlega, þ. e. a. s. hið blíða og viðkvæma, í fari drengja. Þetta er stórhættuleg kenning, sé eftir henni farið, en það gera senni- lega allt of margir foreldrar ennþá. Barnageð- iæknar eru nú þeirrar skoðunar, að ein megin- ástæðan fyrir því, að taugaveiklun er miklu al- gengari meðal drengja en telpna, sé einmitt sú, að oft eru gerðar of miklar kröfur til drengja. Þeir mega ekki gráta ,,eins og stelpur", þeir þurfa sífellt að vera harðir og kaldir karlar. Um þetta virðist prófessorinn alls ófróður. Hann segir ein- faldlega, ,,að lífsfjör drengja sé meira en telpna,

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.