Foreldrablaðið - 01.01.1971, Qupperneq 32
30
HELGA SIGURJÓNSDÓTTIR:
Uppeldis-
handbók
og þó...
Seint á síðastliðnu ári kom út bók, sem nefn-
ist Uppeldishandbókin, foreldrar og börn, eftir
Bandaríkjamanninn Dr. Haim Ginott, prófessor í
sálfræði og sállækningum. Á bókarkápu segir, að
hann hafi verið nefndur Dr. Spock barnasálfræð-
innar, og má af því sjá, að bækur hans hljóta að
vera mikið lesnar, enda var áðurnefnd bók hans
metsölubók i Bandaríkjunum í meira en ár. Björn
Jónsson skólastjóri þýddi bókina á íslenzku og
Jónas Pálsson sálfræðingur skrifar formála að
henni.
Eins og nafn bókarinnar bendir til, er henni
ætlað að vera handbók fyrir foreldra og aðra upp-
a'endur, og höfundur talar um, að hér séu á ferð-
inni nýjar lausnir gamalla vandamála. Satt að
segja kom ég ekki auga á þessar nýju lausnir
við lestur bókarinnar. Flestar kenningar prófess-
orsins eru gamalkunnar og sumar meira að segja
eldfornar og úreltar. Ekki virðist bókin ætluð sér-
lega gagnrýnum lesendum. Hvergi getur höfund-
ur neinna rannsókna eða heimilda máli sínu til
stuðnings. Samt eru þar nokkrar nytsamar ráð-