Foreldrablaðið - 01.01.1971, Blaðsíða 16
14
Styrktarfélagar eru milli 6 og 7 hundruð og eru
framlög þeirra mikils virði, auk þess sem það er
hverju félagi míkill styrkur að vita af svo fjöl-
mennum hóp stuðningsmanna.
Félagskonur halda bazar og hafa kaffisölu á
hverju hausti og vinna að undirbúningi þess mikinn
hluta ársins. Eru þessir bazarar megintekjustofn fé-
lagsins. Leggja konurnar á sig mikla vinnu og má
fullyrða, að félagið væri ekki það, sem það er nú,
ef þeirra nyti ekki við. Fjárráð félagsins hafa verið
svo rúm, að það hefur getað veitt kennurunum
nokkurn stuðning til sérmenntunar, auk þess sem
því hafa verið færðar gjafir sérstaklega í því
augnamiði, en skortur er á sérmenntuðum kenn-
urum fyrir heyrnardaufa. Enn fremur hefur félagið
fært Heyrnarleysingjaskólanum nokkurt fé árlega
til kaupa á tómstunda- og leiktækjum.
Nýtur félagið einhvers styrks frá riki eða borg?
Nei, ekki til félagsstarfsins, en undanfarin þrjú
ár hefur félagið fengið ríkisstyrk til gerðar orða-
bókar fyrir heyrnardaufa og nemur hann 50 þús.
kr. á ári. Hefur nokkur undirbúningsvinna að bók-
inni þegar verið unnin og vona ég, að nú sé að
komast skriður á þetta mál.
Teiur þú, að þessi orðabók henti aðeins heyrnar-
daufum börnum?
Sú bók, sem höfð er til hliðsjónar, er sænsk og
raunar gerð fyrir heyrandi börn og teljum við, að
hún verði gagnleg öilum börnum og þarfur hlutur
á heimilum og í skólum.
Hvaða mái ber einna hæst hjá félaginu þessa
stundina?
Það tel ég vera könnun, sem félagið er að gera
meðal heyrnardaufra, um aðstæður þeirra, svo sem
atvinnu, húsnæði, samneyti við heyrandi fóik og
heyrnardaufa o. m. fl. Slík könnun hefur ekki verið
gerð áður hérlendis, og þegar niðurstöður hennar
liggja fyrir, mun verða auðveldara að gera sér
grein fyrir því, hvar útbóta er helzt þörf og haga
störfum samkvæmt því.
Hverju vildir þú að lokum bæta við það, sem
áður er sagt?
Ég vil gjarna taka það fram, að við biðjum ekki
um nein sérréttindi fyrir heyrnardauft fólk. Aðeins
að það njóti jafnréttis hvað varðar menntun, at-
vinnu og alla aðstöðu í lífinu, og fái eftir því sem
kostur er á, að taka virkan þátt í störfum og at-
höfnum daglegs lífs og njóta til þess aðstoðar og
velvilja þeirra, sem það umgengst. G. Þ.