Foreldrablaðið - 01.01.1974, Síða 7

Foreldrablaðið - 01.01.1974, Síða 7
SJÓNVARP VEITIR FYRIRMYND AÐ STÖRFUM 5 Tilfinnanleg áhrif sjónvarps á börn á aldrinum 10—14 ára, samkvæmt eigin mati þeirra: Hafa orðið hrædd ----- reið ----- döpur Drengir Stúlkur 8% 15% 18% 10% 9% 10% Ef við lítum í staðinn á efni sjónvarps almennt, ekki aðeins á fslandi, heldur einnig í öðrum lönd- um, þá er það augljóslega stéttbundið að vissu marki. Þ. e. a. s. það efni, sem þar birtist, er yfirleitt samið af miIIistéttarfólki og fjallar um millistéttarfólk. Þessi staðreynd skiptir töluverðu máli fyrir uppeldisáhrif tækisins. Efni, sem er harla eðlilegt og venjulegt fyrir eitt barn, getur verið mjög framandi fyrir annað barn. Sjónvarpið getur því opnað nýja heima fyrir börnunum, ekki aðeins landfræðilega, heldur einnig félagslega. Afleiðing- in af þessu kom fram í rannsókn minni á þann veg, að drengir, sem bjuggu á sjónvarpssvæði, reyndust hafa metnaðarfyllri drauma um framtíðar- starf sitt en drengir, sem voru án sjónvarps. Þegar þeir voru spurðir, hvaðan þeir hefðu fengið hug- myndina að starfinu, nefndu þeir sjónvarpið það oft, að mjög sterkar líkur benda til, að það hafi haft bein áhrif á starfsdraumana. Samræmi milli starfs föður og starfsdauma sonar á þremur stöðum: Með sjónvarp Án sjónv. Reykjavík Vestm.eyjar Akureyri Óskastarf sonar mjög frábrugðið starfi föður 56% 50% 20% Óskastarf sonar svipað starfi föður 44% 50% 80%

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.