Foreldrablaðið - 01.01.1974, Page 10

Foreldrablaðið - 01.01.1974, Page 10
8 Á meðan engin hugarfarsbreyting á sér stað og engin alvarleg rýni ofan í kjölinn á okkar eig- in þjóðfélagi, verða allar lausnir á þessum vanda sýndarlausnir. Við getum byggt fleiri og fleiri barnaheimili og sett upp rólur út um allan bæ, en ástandið breytist ekkert. Ekki fyrr en við för- um að líta á börn sem jafnréttháa þegna og okk- ur sjálf. Ekki fyrr en við sjáum meinsemdina, sem liggur að baki kapphlaupinu, tímaleysinu, peninga- leysinu, hugsunarleysinu. Börn hafa ekki atkvæðisrétt og þeirra þarfir njóta þar af leiöandi takmarkaðrar virðingar. Það er litið á það sem hjartagæsku og góðverk að reisa einn og einn leikvöll á malbikinu. Ef við l(t- um á skólana, dagheimilin, leikvelIina, heimilin og almenningssvæði í borginni, sjáum við fljótlega, að skipulagið gerir í raun og veru alls ekki ráð fyrir að börn búi yfir þeirri frumþörf, sem markar að mestu allt þeirra líf og starf í framtíðinni: leikjaþörf. Þetta er ekki borgaryfirvöldum eða einum eða neinum að kenna, heldur aðeins því gegnum gang- andi hugarfari sem einkennir þjóðfélagið, skóla- kerfið, hjónabandið og einstaklingana í heild. Við sjáum auðvitað í kringum okkur, að þetta er að smábreytast, en það gerist ósköp hægt. Enn er verið að byggja risastóra sali fyrir leik- skóla, þar sem inn er hrúgað börnum í tugatali

x

Foreldrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.