Foreldrablaðið - 01.01.1974, Blaðsíða 16

Foreldrablaðið - 01.01.1974, Blaðsíða 16
14 Fyrstu myndir barnsins Höfuðfætla, höf. 4 og hálfs árs. Eins og nafnið bendir til er hér um höfuð að ræða með fótum neðan úr og ef til vill handleggj- um. Barnið hefur tekið stórt skref fram á við, ánægjan af hreyfingunni einni sarnan víkur nú fyrir meðvituðum hugmyndum barnsins um að gera mynd. Þessi þróun á sér þó ekki stað fyrr en eftir að barnið hefur um langan tíma getað leikið sér af tiltölulegu öryggi með hugtök og tákn málsins. Það verður bæði að vita, hvað maður er, hvað hús er o. s. frv., og að hægt er að gera afmynd þess, sem í rauninni er ekki raunverulegt hús, heldur mynd. Oft heldur barnið sig ekki fast við hið upphaf- lega áform sitt um það, af hverju myndin eigi að vera, það getur skipt um skoðun í miðju kafi, ef teikningin minnir af tilviljun á eitthvað annað en það, sem barnið hafði í upphafi hugsað sér. Myndin er að mestu innra með barninu, sjaldan er neinn greinarmunur gerður á karli, konu eða barni, né heldur manni og dýri. Barnið teiknar hús, bát og bíl á mjög svipaðan hátt. Smám saman byrjar barnið að bæta við smá- atriðum eins og augum, munni, hári, dyrum á hús- ið, hjólum á bílinn, rófu á hundinn o. s. frv. Á þess- um aldri ( ca. 4—6 ára) málar það gjarnan með votlitum, og fyllir stóra fleti með lit, sem á engin tengsl við raunaveruleikann, heldur er tjáning til- finninganna. Andleg heilbrigði barnsins er mikið undir því komin að því veitist tækifæri til fjölbreytilegs skap- andi starfs, og að árangurinn fái jákvæðar mót- tökur. Viðurkenning og hrós hinna eldri er frá sjónar- hóli barnsins hin félagslega viðurkennng á því, sem það skapar og aðhefst, og jafnframt hvatn- ing til að halda áfram á sömu braut. Heimildir: Börnetegning. Udvikling og udtryk. Útg.: Munksgaard. Barn och bild. Under redaktion av Gunnar Barefelt. Útg.: Almqvist & Wiksell.

x

Foreldrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.