Foreldrablaðið - 01.01.1974, Síða 22
20
JÓHANN GUÐMUNDSSON,
læknir:
Er heilbrigðisþjónusta skólanna
í takt við tímann?
Góð heilbrigðisþjónusta er ein af undirstöðum
eðlilegrar búsetu í landinu. Þessi þjónusta, svo og
ný skólalöggjöf, hefur verið mikið til umræðu und-
anfarið. Hins vegar hefur heilbrigðisþjónusta í
skólum landsins, sem hlýtur að flokkast undir
frumheilbrigðisþjónustu og einnig skólalöggjöfina,
ekki borið mikið á góma.
Við sem eigum börn í skóla, kennarar, skóla-
læknar og skólahjúkrunarkonur, höfum ýmislegt við
heilbrigðisþjónustu skólanna að athuga.
Með þessari grein er vonast til að byr gefi und-
ir umræður um heilbrigðisþjónustu í skólunum:
1) Hver hún á að vera; 2) Markmið hennar;
3) Skipulag og framkvæmd. Aðalatriðið er að ná
samkomulagi um það, hver þessi þjónusta á að
vera á okkar dögum.
Sögulega séð byrjaði þessi þjónusta sjálfsagt,
þegar skólar voru ilia upphitaðir í lélegum húsa-
kynnum með ófullnægjandi borð og stóla ásamt
skorti á hreinlæti og birtu. f dag ætti þessum
frumskilyrðum að vera fullnægt i öllum skólum
landsins.
Skólaaldurinn er sá hluti ævinnar, þegar heils-
an er bezt að jafnaði. Ekki er hægt að segja,
að skólaveran sem slík sé orsök t. d. hjarta- og
lungnasjúkdóma, en veldur oft þreytu með minnk-
uðu andlegu og líkamlegu úthaldi. Líkamlegir og
sálrænir kvillar eiga sennilega oft upptök í skól-
anum eða koma fram á skólaaldri.
Þá má ekki gleyma hinu alvarlega vandamáli
nútímans, fíknilyfjaneyzlu. Skólaskylduárin eru 8,
en geta orðið 20—30. Þetta er því drjúgur tími
af mannsævinni.
Skólaleiði eða þreyta hjá nemendum hefur ver-