Foreldrablaðið - 01.01.1974, Síða 23
21
ið mikið rannsökuð erlendis. í skólum með 5 daga
skólaviku sýndi það sig, að þreytan var ekki mest
síðasta tíma skóladagsins, heldur þann fyrsta og
þann þriðja. Fróðlegt væri að gera slíka rann-
sókn hér á landi í okkar tví- og jafnvel þrísetnu
skólum. Við skólaleiða má fullyrða að rétta með-
ferðin sé ekki læknisfræðileg, heldur meira upp-
eldisleg, sálfræðileg, félagsleg og kannski mest
pólitísk! Er heilbrigðisþjónustu skólanna ofviða
að leysa líkamleg og andleg vandmál nemenda,
sem stundum orskast af neyzlu fíknilyfja?
Við þessum spurningurn ásamt ótal fleirum væri
æskilegt og nauðsynlegt að fá viðunandi svör.
Umræður og skrif um þetta myndu áreiðanlega
gefa okkur svör við því, hvort heilbrigðisþjónusta
skólanna er nægilega góð í núverandi formi og
þá hver hún ætti að vera í íramtíðinni með tilliti
til annarrar heilbrigðisþjónustu. Á hún að vera
meiri eða minni utan skóla eða innan? Yrði það
vonandi æsku landsins og aliri þjóðinni til gagns.
Til að leiða umræður í farveg verða hér sett
fram nokkur atriði heilbrigðisþjónustunni til íhug-
unar:
1) Á ekki að auka heilbrigðisþjónustuna fyrir
börn á aldrinum fyrir skólaskyldu? -— Sjúkleika
á að fyrirbyggja og helzt eins snemma og hægt
er. Á þeim árum, sem líða frá því barnið hættir
reglulegum heimsóknum á heilsugæzlustöðvar og
þar til skólaskylda byrjar, væri rétt að auka heilsu-
gæzluna meira en nú er í þessum tilgangi.
2) Á heilbrigðisþjónusta skólanna að beina
kröftum sínum meira að því að fyrirbyggja or-
sakir heilsuleysis og úthaldsleysis nemendanna?
Þessara orsaka er oft að leita utan skólans,
í umferðinni, á heimilunum eða þar sem nemendur
eyða frístundum sínum.
Sem kunnugt er eykst umferð hér gífurlega
hratt. Umferðamenningu hér er mjög ábótavant
mest vegna skorts á umferðaþekkingu, umburðar-
lyndi og kurteisi í umferðinni. Þá eru þess mörg
nærtæk dæmi, að leiðir barna í skólana eru ekki
með nægum umferðamerkjum.
í okkar þjóðfélagi sem öðrum verður það æ
algengara, að báðir foreldrar barnanna vinna utan
heimilisins. Þetta vandamál varðar skóla og börn