Foreldrablaðið - 01.01.1974, Qupperneq 25
23
SVAVA STEFÁNSDÓTTIR,
félagsráðgjafi:
Hvers vegna fræðsla
Ég hygg flesta nú orðið vera sammála um nauð-
syn þess að fræða börn á eðlilegan og hreinskil-
inn máta um þær staðreyndir lífsins, sem lúta að
kynferði og kynlífi.
Hvers vegna er þessi fræðsla nauðsynleg? Það
er álíka auðvelt að svara þessari spurningu eins
og þeirri, hvers vegna nauðsynlegt sé að læra að
lesa. Svarið er blátt áfram: Til þess að búa börnin
betur undir lífið.
Hvenær á að byrja að fræða börnin? Þörfin
fyrir fræðslu gerir oftast vart við sig með því, að
börnin spyrja eða spurningar liggja í loftinu. For-
vitnir og opinskáir krakkar fara fljótt að spyrja,
ef til vill 3—4 ára gömul. Þau spyrja til dæmis
hvaðan börnin komi og hvernig þau hafi komist
þangað. Það veltur á miklu, að börnunum sé svar-
að af hreinskilni strax frá upphafi og svörin mið-
uð við aldursþroska barnsins. Við foreldrar eig-
um ef til vill ekki öll svo auðvelt með að veita
þessa fræðslu, án þess að verða sjálf eitthvað
smávegis þvinguð og feimin. Það liggur í hlutar-
ins eðli óg á rætur sínar að rekja til okkar eigin
uppvaxtarára. — Ef við strax frá byrjun, þegar
börnin eru lítil, venjum okkur á að svara spurning-
um þeirra af hreinskilni og án þess að gera hlut-
ina flókna, veitist okkur auðveldara að bæta við
þekkingu barnanna, þegar þau stækka og þroskinn
eykst.
Fræðslan um hlutverk okkar sem karls og konu
hefst þannig á heimilinu, þegar best vill. Ýmsir
atburðir í fjölskyldunni, svo sem barnsfæðingar,
giftingar, eða þegar húsdýr eignast afkvæmi og
fleira, koma oft umræðum af stað. Það er ágæt
regla að láta spurningar barnanna ráða ferðinni.
Þær gefa nokkuð vel til kynna, hvaða fræðslu barn-
ið er reiðubúið að taka við. Ef börnin spyrja einsk-