Foreldrablaðið - 01.01.1974, Síða 33

Foreldrablaðið - 01.01.1974, Síða 33
JÓN S. KARLSSON, sálfræðingur: 31 Hvers vegna er fyrsta árið svo mikilvægt Lengi fram eftir þessari öld var það viðburður, ef fræðimenn á sviði sálarfræði gerðu fyrstu ár ævinnar að viðfangsefni sínu. Var þá talið, að annað hvort skipti þetta tímaþil minna máli en seinni tíniabil bernskunnar, eða að sú staðreynd, að erfiðara var að koma við rannsóknum á þessu tímaskeiði, og því hafi menn einbeitt sér að því að rannsaka það, sem auðveldara var. í seinni heimsstyrjöldinni beindist athygli manna að börnum, sem höfðu verið aðskilin frá mæðrum sínum á fyrsta árinu. Varð mönnum þá áþreifan- iega Ijóst, að ekki er nægilegt að fullnægja ein- göngu líkamlegum þörfum á venjubundinn, óper- sónulegan hátt, heldur er nauðsynlegt að barnið hafi tengsl við ákveðna manneskju, sem sýni því ástúð. Þetta hefur einnig komið fram á vöggu- stofum, þar sem einungis er séð fyrir fæðuþörf barnsins svo og hreinlæti. Börn, sem alast upp við slíkar aðstæður fyrsta árið, sýna upp frá því, mismunandi mikið, öryggis- leysi og truflanir á tengslum við annað fólk, sem einkum lýsa sér í því, að einstaklingurinn á auð- velt með að komast í yfirborðsleg tengsl við aðra en skortir hins vegar hæfni til þess að mynda dýpri og varanlegri tengsl. Á fyrsta árinu má telja, að einstaklingurinn myndi sér grundvallarafstöðu til umheimsins, þá læri hann að líta á heiminn sem þægilegan og ör- uggan stað eða hið gagnstæða. Hæfni einstakl- ingsins til að mynda tengsl við aðra þróast á af- gerandi hátt á þessu tímabili. Fyrsta árið verður enn mikilvægara, þar sem einstaklingurinn verð- ur að öðlast ákveðna reynslu, þ. e. a. s. föst tengsl við ákveðna manneskju og njóta ástúðar hennar. Ef það er ekki fyrir hendi á þessu tímabili, bendir margt til þess, að það verði ekki að fullu bætt síðar, enda þótt reynt sé þá að láta einstakling- inn njóta þess, sem hann fór á mis. Þá er það of seint.

x

Foreldrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Foreldrablaðið
https://timarit.is/publication/890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.