Landneminn - 01.10.1947, Qupperneq 22

Landneminn - 01.10.1947, Qupperneq 22
Crettu. nú Á þessari síðu LAN D- NEMANS munu £ram- vegis l)irtast getraunir, gátur og annað ýmislegt efni til dæ,gradvalar. IJar eð LANDNEM- INN er helgaður hags- munamálum og áhuga- málum íslenzkrar æsku, fer vel á því, að æsku- fólkið, sem les hann, eigi þess kost að spreyta sig á andlegum við- fangsefnum til að stvtta skammdegið, sem nú fer í hönd. Alþýða íslands hefur um aldaraðir haft gaman a£ gátum, það sýnir ljósast hinn mikli fjöldi snjallra íslenzkra gátna, sem alþýðan hef- ur varðveitt fram á þennan dag. Mun ég leitast við að birta í hverju blaði jafnan eina íslenzka gátu, Jjegar rúm og aðrar ástæður leyfa. Verðlaunagetraun. í hverju tölublaði verður ein aðalgetraun og fyrir rétta lausn hennar verða veitt eitt hundrað króna verðlaun. Get- raun Jressa tölublaðs er fólgin í því, að skipta klukkuskífu með 3 línum í 4 reiti Jíannig, að tölurnar í hverjum reit fyrir sig verði samanlagðar 15. Að svo stöddu er ekki unnt að hafa skákdálk hér í blað- inu, sem þó væri mjög æskilegt. Til að bæta skákunnendum Hvítt á að máta í blaðsins það upp, öðrum leik. mun ég til að byrja með birta skákþrautir á Jtessari síðu fyrir þá til að spreyta sig á. í skák- j)raut J)essa tölublaðs á hvítur að máta í öðrum leik. Aðrar getraunir verða á þessari síðu eftir því sem rúm leyfir. Hér er þraut l'yrir þá lesettd- ur, sem eru að lesa und- ir gagníræðapróf: Snúra jafnlöng hinni hugsuðu miðjarðarlínu er lögð ofan á ltana kringum alla jörðina. Ef skorið væri á snúruna og aukið við hana 20 metrum, hvað mundi hún lyftast langtfrájörðunni, ef hún lyftist jafnmikið allt í kring? Mundi fullorð- inn maður geta gengið undir snúruna? Rammislenzka gátu hafið J)ið hér: Byrgir sól til saka mjög svelgir vatn og bjarkir. Felur bólið, fisk og drög, fjöllin, dal og markir. Þátttakendur í verðlaunagetrauninni sendi ráðningar sínar til blaðsins í lokuðu umslagi merktu: Gettu nú. Ráðningarnar skulu í síð- asta lagi vera komnar til blaðsins fyrir 20. nóvember, annars eiga þátttakendur J)að á hættu, að ráðningar þeirra verði ekki teknar til greina við verðlaunaveitinguna. Ef fleiri en ein rétt ráðning berst, verður dregið um verðlaunin. Munið að skrifa vel og skilmerki- lega nafn og heimilisfang. Myndin er af klukkusaifu. Með ÞREMTJR lin- um, beinum eða bognum, á að skipta klukku- skifunni i FJÓRA reiti þannig, að tölurnar SAMANLAGÐAR verði 15 í hverfum reit fyrir sig. 16 LANDNEMINN

x

Landneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landneminn
https://timarit.is/publication/893

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.