Unga Ísland - 01.01.1933, Blaðsíða 12
8
UNGA ÍSLAND
Mamma hans var ekkja, og var hún
mjög fátæk. Hún hafði ekki áðra at-
vinnu en þá, að hún gerði hreint og
þvoði þvotta fyrir fólk. Hún átti ann-
an lítinn dreng, sem ekki var nema 5
ára. Hún hafði því orðið að sjá fyrir
tveimur drengjum, óg var hún því orð-
in þreytt á því, að ganga út í bæ næst-
um því á hverj um degi; en ..nú var
Gunnar farinn að vinna, og þurfti hún
því ekki að vinna eins mikið.
Einn dag, þegar farið var að hausta,
kom mamma hans heim. Hún hafði ver-
ið að vinna einhvers staðar úti í bæ.
Henni vár mjög kalt, því að kalt var í
veðri, og hún átti ekki nema svo skjól-
litla kápu. Einhver hafði gefið henni
gamla kápu, þar sem hún hafði verið að
vinna. Mamma hans fór nú að tala um
það, að gott væri nú að eiga hlýja kápu
undir veturinn, en það þýddi nú lítið að
tala um það, það væru ekki svo miklir
peningar til núna. En þegar Gunnar fór
að hugsa um kápuna hennar mömmu
sinnar, þá fannst honum miklu nær
að gefa mömmu sinni kápu, heldur en
að kaupa hjól; hann gæti nú svo sem
notast við gamla hjólið, þangað til
seinna, að hann hefði meiri peninga.
Svo afréð hann að hætta við að kaupa
hjólið, en fór niður í búð og keypti bæði
fallega og hlýja kápu fyrir peningana,
sem hann ætlaði að kaupa hjólið fyrir.
Og hann var miklu ánægðari, þegar
hann sá, hvað mamma hans varð glöð
yfir því, að fá svona fallega og góða
kápu, heldur en þó að hann hefði fengið
hjólið. En þó að mamma hans væri glöð
yfir því, að fá kápuna, þá var hún enn-
þá glaðari yfir því, að eiga svona góðan
dreng.
Guðrún Jakobsdóttir.
12 ára.
Hér fara á eftir frumdrættir að sögu,
og eru það vinsamleg tilmæli ritstjórn-
arinnar, að lesendur riti sögu, þar sem
þessir frumdrættir eru lagðir til grund-
vallar. Og ef vel tekst, væri oss þökk á,
að þeir sendu oss sögurnar. Besta sag-
an verður birt í blaðinu, og fyrir hana
verða veitt verðlaun.
Frumdrættir:
1. Litla stúlku langar til að 'sækja
sundnámskeið, sem haldið er í
sveitinni.
2. Fær ekki að fara.
3. Frændi úr Reykjavík kemur og
fær pabba og mömmu til að leyfa
telpunni að sækja námskeiðið.
4. Sundnámskeiðið. •
5. Seinna um sumarið bjargar stúlk-
an yngra bróður sínum frá drukkn-
un. —
Tilraun.
Deyjandi eiginkona: -Ég get ekki hugsað til
að hvíla í gröfinni annars staðar en á æsku-
stöðvum mínum.
Eiginmaðurinn (sem ofbýður flutningskostn-
aðurinn) : Það er sjálfsagt, góða mín, að flyt.ja
|)ig þangað, ef þú getur ekki hvílt hér í friði;
en ég vil nú samt að við reynum hitt fyrst.
* * *
Slæmur kvilli.
Eiginkona: Herra læknir, eru engin ráð til
að lækna manninn minn ? Hann talar svo mik-
ið upp úr svefninum. Og svo talar hann svo
voða óskýrt.
* * *
Helgidagavinna.
Kennarinn: Ef hænurnar á Hóli verpa sex
eggjum til jafnaðar á dag, hve mörgum eggj-
ttm verpa ]iær á viku ?
Jcnsi (eftir fárra mínútna heilabrot) : Kenn-
ari, verpa hænurnar líka á helgidögum ?