Unga Ísland - 01.01.1933, Blaðsíða 18
14
UNGA ÍSLAND
_______jA~U_______________________________
UNGA ÍSLAND.
Eign Rauða Kross íslands.
Kemur út 12 sinnum á ári; alls 194 bls.
Ititstjðrar:
Steingrímur Arason,
Arngrímur Kristjánsson.
Gjaldkeri blaðsins cr Arngrímur Kristjáns-
son, Bergþórugötu 33, slmi 2433. Utanáskrift
blaðsins öllu vitSvíkjandi er: Pósthólf 3G3.
Aðal útsölu Unga íslands í Reykja-
vík annast Bókhlaðan, Lækjargötu
2. — Þar er t.ekið á móti nýjum
kaupendum og andvirði lilaðsins.
Prentað í ísafoldarprentsmiðju h.f.
Smávegis.
Einstein er nú álitinn einhver vitrasti mað-
urinn, sem til er í heiminum.
Drengur einn spurði hann, hvaS líklegast
v;eri, til þess aS hjálpa manni, að komast sem
hest áfranx í heiminum.
Eiristein svaraSi:
„Hið eina, sem gerir lífið þess vert, að því
sé lifaS, er þaö, að lifa fyrir aðra“.
MEÐ GREINAFLOKKNUM og
frásögnunum um Einar Jónsson, hefst
nýr þáttur í blaðinu. Unga ísland mun
í framtíðinni gera sér far um að kynna
íslenska listamenn fyrir lesendum sín-
um, svo sem hér er gert.
Unga ísland stækkar.
Sú ráðstöfun hefirverið gerð, að tvö-
falda stærð Unga íslands, með byrjun
þessa árgangs, en láta verð blaðsins þó
haldast óbreytt.
Framvegis koma því út 16 síður á
mánuði í stað 8 áður, eða alls 192 les-
málssíður á ári. Unga Island er því
langsamlega stærsta og ódýrasta
barna- og unglingablað landsins. Út-
gáfustjórnin heitir því á alla vini Unga
íslands, útsölumenn, kaupendur og
aðra lesendur að ganga nú rösklega
fram við söfnun nýrra kaupenda. Hver
útsölumaður, sem bætir við sig 10 nýj-
um kaupendum fær að verðlaunum
góða íslenska skáldsögu.
Takmarkið er 1000 nýir kaupendur
þegar á þessu ári.
Öllum útsölumönnum verður skrif-
að í næsta mánuði. — Útsölumenn ósk-
ast, þar sem þeir eru ekki áður fyrir.
Greiðið blaðið og útvegið nýja kaup-
endur, 1 eða fleiri. Það ætti að vera
auðvelt, því aldrei hefir nokkurt blað
boðið betri kjör.
A. : Ósköp eru að vita, live lítið er að marka
])að, sem maður heyrir.
B. : Já, maður getur ekki trúað því, en það
er hægt að hafa það eftir.
Táknmál.
tJr þessu á að lesa setningu. — Ráðning í næsta blaði.