Unga Ísland - 01.01.1933, Síða 17
UNGA ÍSLAND
13
Teikning eftiv Einar Jónsson af fvrirhugaðri byggingu vfir íslensk listasöfn.
jarða hana einhvers staðar úti á víða-
vangi, þó hann væri útilegumaður. Hin
myndastyttan heitir Dögun, hún er af
trölli, sem ber stúlku á öxlinni. Tröll-
ið er með útréttan handlegginn og
krepptan hnefann og illilegt á svipinn,
en stúlkan er aftur á móti fagnandi, með
útbreiddan famðinn.
Myndin á að tákna það, að tröllið var
að ræna stúlku, en það var nátttröll og
mátti því ekki sjá sólina. En sólin var
að koma upp og þess vegna var það svo
reitt. Stúlkan var glöð yfir því að
sólin var að koma upp, því þá mundi
hún losna úr trölla höndum, því tröllið
varð að steini, þegar það sá sólarljós-
ið. Þar er líka ein mynd, sem heitir Ein-
búinn í Atlantshafinu, sú mynd er úr
kopar. Hún er af lítilli eyju úti í hafi,
og eru landvættir öllu megin við
eyjuna. Myndin á að tákna Island. Þar
er einnig mynd, sem heitir Samvisku-
bit. Hún er af mannsandliti. Við eyrað
á mannsandlitinu er maður að rífa upp
á því eyrað. Það á að þýða, að sá, sem
vill ekki heyra hann skuli heyra. Við
augað á mannsandlitinu er líka maður
að rífa upp á því augað, það á að þýða
að sá, sem vill ekki sjá hann skuli sjá.
Þar var líka myndastytta af nótt og
degi. Nótt og dagur haldast í hendur,
þau eru jafn stór, en á milli þeirra
stendur maður, sem heldur á stórum
hnetti, það á að tákna sólina.
Gyða Sigurgeirsdóttir
12 ára.